Æskan

Volume

Æskan - 01.04.1994, Page 28

Æskan - 01.04.1994, Page 28
stráka í heimi"! Þeir segjast gjarna vilja hafa báða fætur á jörðinni. „Að taka of mikið mark á slíku er tryggasta leiðin til að ganga af vitinu!“ segja þeir. Póstfang aðdáenda- klúbbsins: Take That fan club, P.O.Box 538, Manchester M60 2DX, Englandi. Bryan Adams fan club, Bruce Allen Talent, Suite 406, 68 Waterstreet, Vancouver, BCV 6G 1A4, Kanada. Við höfum ekki upplýsing- ar um Kevin Jones. TAMNINGAR Kæri Æskupóstur! Mig langar til aö vita hvað maður þarf að vera orðinn gamall og hvaða menntun þarf að hafa til að hefja nám við Bændaskólann á Hólum. Hvað kostar að vera þar í eitt ár? Ég þakka gott blað. Eva og Adam er skemmtileg saga. Blesa XXX. Svar: Aldurslágmark er 18 ár. Skilyrði er að hafa lokið 65 einingum alls i framhalds- skóla. Stigafjöldi í hverri námsgrein er greindur í bæklingi sem panta má hjá skólanum (s. 95-35962). Frá næsta skólaári (sem hefst í sptember nk.) verður námið eitt heilt ár (i stað tveggja vetra undanfarið). Þeir sem hyggjast læra tamningar verða að hafa umgengist hesta og verið i sveit bæði sumar og vetur. ROKKLIN6AR Kæri Æskupóstur! Starfar sönghópurinn Rokklingarnir enn þá? Ef ekki, getið þið þá birt grein og prentað veggmynd af „Mini- Pops“ eða „Popschool"? Mér finnst Eva og Adam æðislega skemmtileg saga. Það mættu vera fleiri þrautir í blaðinu en þið hafið haft. Halla Sandvík. Svar: Birgir Gunnlaugsson, sem kom Ftokklingunum á fót og stjórnaði þeim, sagði að LEIKARAR Kæri Æskupóstur! Þökk fyrir gott blað. 1. Ég ætla að biðja um fróð- leiksmola um Keanu Reeves og veggmynd af honum, einnig nokkra mola um Patrick Swayze, Mel Gibson, Richard Grieco og Christian Slater og veggmyndir af þeim. Mér finnst Eva og Adam skemmtileg myndasaga og að meira mætti vera af henni í einu. 2. Hve gamall þarf maður að vera til að fara á fyrirsætu- (módel)námskeið? Ein með leikaraþrá. Svar: 1. Sagt var frá Keanu i 4. tþl. Æskunnar 1993 - Patreki i 7. tþl. 1988 (veggmynd fylgdi) - Rikharði í 1. tbl. 1993 (veggmynd: 7192) - Kristjáni i 2. tbl. 1994 (vegg- mynd: 6/92). Ef þú átt ekki þessi tölublöð skulum við senda þér þau. Mel höfum við í huga og mynd af Keanu - en þessu má bæta við um hann: F. í Libanon 2.9. 1964, son- ur „hippa“foreldra sem flökkuðu um heiminn. Þeir höfðu aðgang að digrum sjóði og þurftu ekki að vinna. Frá Líbanon fluttist fjölskyld- an til New York og var þar þangað til K. var sex ára en færði sig þá til Toronto í Kanada. Hann lék is- og körfuknattleik á æskuárum. Var dálítið feiminn á grunn- skólaárunum en þó að nokkru „trúður bekkjarins". „Kannski var það þess vegna sem ég fór að leika á sviði 15 ára, “ segir hann. Þá ekkert væri í bígerð í haust. En vera kynni að safnað yrði saman nýjum hópi á næsta ári og gefin út plata þá um haustið. Við skulum kanna hvort við finnum eitthvað um er- lend „popp-börn“. CAMLIR, 6ÓÐIR ÞÆTTIR Hæ, hæ, Æska! Um daginn var ég að lesa „gömul“ Æskublöð frá árunum 1984-1988. Þar voru margir góðir þættir, t.d. Æskan spyr og Slegið á þráðinn. Þar voru líka miklu fleiri skrýtlur en núna. Gætir þú byrjað með einhverja af þessum þáttum aftur? Hvað kostar að senda bréf til Englands? En Bandaríkj- anna? Kata. Svar: Það er gaman að heyra að þér líkar efni blaðanna frá þessum árum. Kannski verða þættirnir aftur i blað- inu, a.m.k. Æskan spyr. En skrýtlur hafa verið álíka margar frá þvi við Eðvarð tókum við þlaðinu 1985. Hins vegar var þeim dreift um blaðið framan af. Ég fletti nokkrum tölublöðum til að rifja þetta upp. En eflaust má finna stök tölublöð með fleiri skrýtlum en nú eru í Æskunni. Burðargjald bréfa, sem eru undir 20 g á þyngd (þrjár arkir af vélritunarpappír, A- 4), er nú 35 kr. í A-pósti en 30 i B-pósti til Englands (og annarra Evrópuríkja). Ef sent er til Bandarikjanna kostar það 55/35 kr. hóf hann líka nám í leiklist- arskóla en var þar einungis tæpt ár. Hann stundaði ýmsa vinnu, svo sem við að skerpa skauta og búa til pastal, þar til hann fluttist tvítugur til Hollywood. Tveimur árum siðar fékk hann hlutverk i kvikmyndinni Æskublóði, „Youngblood", og siðan hefur hvert tekið við af öðru. 2. Aldursmarkið er þrettán ár - bæði hjá Módelsamtök- unum (s. 91-687480/643340) og Módel 79 (s. 91-678855). HUNDA- LEIÐBEINANDI Kæri Æskupóstur! ( hvaða skóla er hægt að læra að verða hundaþjálfari? Hve langan tíma tekur það? Tvær úrTungunum. Svar: Hundaræktarfélag íslands menntar leiðbeinendur (og vill fremur nota það heiti en þjálfarar) til að halda nám- skeið. Námið er bæði verk- og bóklegt og tekur tvö ár. Þeir sem nema fylgjast með leiðbeinendum og aðstoða þá á unghunda- og hlýðni- námskeiðum. Þau eru haldin um kvöld og helgar. Hundaskólinn á Bala veitir sömu menntun. Erlendir dómarar prófa nemana að loknu námi. Kærar þakkir fyrir bréfin. Við reynum að svara sem flestu af því sem þið forvitnist um. Munið að lesa vand- lega Æskupóstinn í nokkrum blöðum áður en þið sendið fyrir- spurn til okkar. Mjög oft hefur svip- uðum spurningum ver- ið svarað áður. Þá fáið þið svarið miklu fyrr en ella. Undirritið líka alltaf með fullu nafni og póstfangi. 2 8 Æ S K A N

x

Æskan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.