Æskan

Árgangur

Æskan - 01.04.1994, Síða 37

Æskan - 01.04.1994, Síða 37
ÆSKUVANDI Pósthólf 523, 121 Reykjavík. Umsjón: Sigurborg Sveinbjörnsdóttir. NÁMSLEIÐI OC FEIMNI Kæri Æskuvandi! Ég veit að vandi minn er ekkert rosalegur miðað við öll þau vandamál sem lesa má um í þættinum. En þannig er að ég hef misst allan áhuga á að læra. Ég hef ekki eirð í mér til að lesa undir próf. Ég get ekki einbeitt mér. Eftir fimm mínútur er ég búin að henda frá mér bókinni og farin að lesa eitt- hvað annað (ég hef áhuga á skáldsögum). Hitt vandamálið er að ég er svo vinafá og feimin. í frímínút- um sit ég kannski hjá mörgum krökkum sem tala mikið en ég hlusta bara og fikta í einhverju. Ég þori einfaldlega ekki að tala. Mig hefur oft langað á ball en ég hef aldrei neinn til að fara með. Ef ég færi ein og reyndi að hitta einhverja krakka hef ég á tilfinningunni að enginn nennti að hafa mig með. Hvað lestu úr skriftinni? Hvað heldur þú að ég sé göm- ul? Flækja. Svar: Það er leitt að heyra þetta um námsleiðann. Ég get vel skilið hvernig þér líður. Þó á ég í dálitlum vandræðum með svarið af því að þú getur þess ekki hvort þetta er ný- byrjað eða hefur varað lengi. Ég veit ekki heldur hvernig þér hefur gengið í skólanum. Það er ekki óalgengt að slíkur leiði komi yfir ungling sem hefur ekki gengið allt of vel í skólanum, orðið undir félagslega, lent í útistöðum við kennara - eða eitthvað þessu líkt hefur bagað. Þá þarf að leita sér aðstoðar, t.d. hjá námsráðgjafa skól- ans, til að skipuleggja námið. Oft þarf maður að taka sig taki þegar próflestur byrjar. Góð regla er að lesa í ákveð- inn tíma og taka sér síðan frí stutta stund; skipta deginum þannig með nokkrum hléum. Þetta mál með vinina og feimnina er all-al- gengt í þínum aldurs- hópi. Þú talar ekki um hvað þú hefur gert til að eignast vini. Oft er það nú í skólanum, við tóm- stundastörf eða í nán- asta umhverfi, t.d. sömu götu, að krakkar kynn- ast og fara að leika sér saman. Mér dettur í hug hvort það gæti verið þrösk- uldur að þú hafir minnimátt- arkennd eða sért svo feimin að þú dragir þig t hlé og gefir öðrum (óbeint) ekki kost á að kynnast þér. Fáðu ein- hvern sem þú þekkir til að fara með þér á ball. Ég veit að það verður þér auðveldara en þig grunar. Gangi þér vel! Skriftin er skýr og þú hef- ur gengið vel frá bréfinu. Lík- lega ertu 14 ára. ERU ÞEIR HRIFNIR? Kæra Sigurborg! Við, tvær stelpur að norðan, erum hrifnar af þremur strákum sem við skulum kalla X, Y og Z. X og Y eru dálítið opinskáir og tala næstum við hvern sem er en Z er fremur feiminn og „lok- aður“. Samt eru þeir allir „æð- islegir". Við vitum ekki hvort þeir eru hrifnir af okkur. Hvað getum við gert til að komast að því? Við erum líka dálítið feimnar og þorum ekki að tala við þá. Okkur langar líka að vita hvað þér finnst að maður þurfi að vera orðinn gamall til að sofa hjá. Tvær ráðalausar. Svar: Kæru stelpur að norðan! Við fáum mörg bréf um vandamál sem eru lík ykkar. Af lýsingu ykkar má ráða að X og Y séu nógu upplitsdjarf- ir til að láta skýrt í Ijós hvort þeir laðast að ykkur eða ekki. Ef ykkur finnst þeir á- hugalitlir verðið þið að gefa ykkur að þeim og spjalla við þá - ef hrifn- ingin varir þá enn. Sama gildir um Z. Hann virðist þurfa á uppörvun að halda. Þið verðið þá að hafa frumkvæðið. Að byrja að sofa hjá er stórt skref hjá stelp- um á ykkar aldri, ekki síst ef þið eigið við að sofa hjá strákum sem þið þekkið lítið sem ekkert. Maður sefur ekki hjá bara til að geta sagt „ég hef sofið hjá“. Margir aðrir þættir þurfa að koma til. Þar ber hæst and- legan og sálrænan þroska og að hafa myndað traust og gott tilfinn- ingasamband við aðra mann- eskju. Að mörgu þarf að gæta, t.a.m. ótímabærri þungun og ýmsum sjúkdóm- um sem tengjast kynlífi. Margir krakkar og reyndar líka fullorðið fólk nenna ekki að hugsa um þessa hlið málsins. Þetta um óléttu, sjúkdóma og fóstureyðingu er bara eitthvað sem kemur fyrir aðra en ekki þá. Rannsóknir á fyrstu sam- förum unglinga sýna að margir sofa fyrst hjá af al- gjörri forvitni, bara til að prófa. Síðan geta liðið mörg ár þar til reynt er næst. Ég hef heyrt að margir unglingar lýsi yfir vonbrigðum með þessar fyrstu „tilraunasam- farir“ og er talið að þau stafi af því að þeir hafi ekki verið nægilega þroskaðir á öllum svlðum til að geta notið reynslunnar. Yfirleitt er mælt með að viss þróun og að- dragandi eigi sér stað þar sem samvera, atlot og gælur um einhvern tíma móti sam- bandið. Grunnurinn verður að vera traustur til að náin kynni verði báðum til góðs. Ég vil ekki tala um ákveð- inn aldur einstaklings í þessu sambandi heldur benda á það sem ég hef sagt áður um þroska unglings. Skriftin er góð. Þið eruð líklega 15-16 ára. AE> STAMA Svar: Þakka þér kærlega fyrir bréfið. Þú baðst um það yrði ekki birt... Vandamálið, sem þú lýsir, er dálítið erfitt. Þú spyrð: „Af hverju stamar fólk?“ Oft er það svo að börn eiga í mál-erfiðleikum án þess að nokkur skýring eða orsök finnist - þó að heyrn sé eðlileg og verkleg greind einnig. Stam er það kallað þegar tal er slitrótt eða hik- andi á þann hátt að fram- burður orðs truflast af endur- tekningu eða lengingu hljóðs. Þrátt fyrir miklar rannsóknir hefur ekki fundist neinn líf- fræðilegur þáttur eða þáttur í umverfi sem orsakar stam. Þó getur stamið verið al- gengara í sumum fjölskyld- um en öðrum. Talið er að for- eldrar, sem verða áhyggju- fullir og reyna að leiðrétta stamandi barn, kunni að ýta undir stam þess. Við streitu og álag eykst stamið. Yfirleitt eldist stam af börnum en í nokkrum tilfell- um er það þrálátt fram á full- orðinsár. Ekki hefur fundist nein algild meðferð við stami. Sé það á háu stigi byggist meðferð einkum á því að hjálpa fólki til að lifa með því. Þú segir í bréfi þínu að þú hafir stamað sem lítið barn, síðan hætt en sért nú aftur byrjuð. Þú nefnir ekki hvort í fjölskyldunni hafi átt sér stað einhverjar breytingar sem gætu hafa haft áhrif á þetta. Skriftin er skýr en dálítið ójafnvægi í setningaskipan. Gangi þér vel! Kærar þakkir fyrir bréfin! Mérþykir vænt um að nú muna lang- flestir eftir að undir- rita með réttu nafni. Ég vona að ráðlegg- ingarnar komi bréfriturum og öðrum að gagni. Með kærri kveðju, Sigurborg. Æ S K A N 3 7

x

Æskan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.