Æskan - 01.04.1994, Qupperneq 41
„VIÐ BYRJUÐUM AÐ LEIKA í
KVENNASKÓLANUM í REYKJAVÍK“
Rætt við Ögmund Rúnarsson gítarleikara
Grillaðs þrillers & síldarsmellanna!
PLOTUGAGNRYNI
ÞÆGILEG
SAFNPLATA
Titill: Heyrðu 3.
Flytjendur: SSSól, Orri Harðar,
Anna Mjöll, Vinir vors og
blóma, Þóranna JónBjörns-
dóttir og Elvar Aðalsteinsson,
Enigma, Proclaimers o.fl.
Fáar safnplötur bjóöa upp á jafngóða byrj-
un og Fleyrðu 3. Fyrstu sex lögin (af sautján)
eru hvort öðru betra. Upphafslagið er
índíána/araba-popplagið „Return to Inn-
ocence“ með Enigma, ein áhugaverðasta
poppballaða síðasta árs. Cranberries taka við
með hugljúfu og seiðandi þjóðlagakenndu
poppi, „Linger“.
SSSól á besta íslenska lagið á plötunni. í
því sameinast áhrif frá harðneskjulegu ensku
nýrokki, bandarísku blökkumannafönki og
falsettusöngstíl Micks Jaggers frá diskóárum
Rolling Stones.
Skosku braeðurnir í Proclaimers eiga hér
óvænta en vel heppnaða endurkomu með
vinalegu popprokklagi, „Let’s Get Married".
Upphafstónarnir eru sóttir í smiðju Fats Dom-
inos. Peir falla einkar vel að hressileika lags-
ins án þess að blandast því á annan hátt.
Smashing Pumkins er ein mest spennandi
bandariska nýrokksveitin um þessar mundir.
Flér er þessi magnaði kvartett með frekar
seintekna ballöðu, „Disarm", sem vinnur
kröftuglega á við hverja spilun. Orri Harðar
fylgir stemmningunni eftir með Ijúfu vísna-
poppi, söng úr lífinu, krydduðum örlitlum
djasskornum.
Platan fellur úr háum söðli þegar kemur að
sjöunda laginu, „Renaissance“ með M-
People. Einhæft lag í vélrænum tölvubúningi.
Seinni hluti plötunnar stendur þeirri fyrri að
baki. Þó eru þar nokkur prýðileg lög. T.a.m.
„Mr. Jones" með kántríblússveitinni Counting
Crows. Hún sækir sterk áhrif í írska þjóðlaga-
rokkarann Van Morrison. Sveitin Stakka Bo
rabbar einnig þokkalegasta fönklag, „Down
The Drain“.
Quicksand Jesus á næst besta íslenska
lagið á plötunni, „Suicide". Þessari efnilegu
Nýlega fór okkur að berast til eyrna
hrósyrði um „bráðskemmtilega hljómsveit
sem heitir Grillaður þriller og síldarplanið eða
eitthvað svoleiðis". Skömmu síðar heyrðum
við þessa nýstárlegu hljómsveit skemmta við
opnun málverkasýningar Önnu Gunnlaugs-
dóttur í Listasafni A.S.l’.
Allt um fyrrgreind hrósyrði kom hljómsveit-
in verulega á óvart. Músíkin er létt, nýstárleg
og spennandi, söngtextarnir frumlegir og
fyndnir; auk þess er sviðsframkoman fjörleg
og sannfærandi.
Nafn hljómsveitarinnar þvælist mjög fyrir
fólki. í upphafi fengum við nafnið rangt eftir
haft. Rétt nafn er Grillaður þriller & síld-
arsmellirnir. Framandi nafn en fellur vel að stíl
tríósins.
Við spurðum gítarleikarann, Ögmund Rún-
arsson (áður í hljómsveitinni One Mö) um til-
drög hljómsveitarinnar.
„Við byrjuðum að leika opinberlega í
Kvennaskólanum í Reykjavik fyrir jól,“ upplýs-
ir Ögmundur og heldur áfram:
„Síðan vatt þetta upp á sig. Við höfum ver-
ið fengnir til að skemmta í alls konar einka-
samkvæmum, á árshátíðum, í afmælum og
þess háttar. Við komum einnig fram á íþrótta-
hátið í Laugardalshöllinni fyrir skömmu.
Ögmundur hefur alist upp við músík því að
stjúpfaðir hans, „Gilli", var í vinsælli og lang-
lífri hippa- og pönkhljómsveit, Kamarorghest-
unum (með Lísu Páls dagskrárgerðarmanni
hljómsveit svipar nokkuð til Jet Black Joe.
Þær tvær myndu báðar styrkjast til muna ef
sjálfstraust þeirra efldist nægilega til að þær
færu að syngja á íslensku í stað ósannfær-
andi skólaensku. Rokksagan sýnir að íslensk
lög sungin á ensku gleymast fyrr en þau sem
sungin eru á íslensku.
Önnur áhugaverð lög á plötunni eru hið
ofurrólega Mmm Mmm Mmm Mmm með
Crash Tesi Dummies og popprokkslagarinn
„Locket Up“ með Crowded House.
hjá Rás 2) á áttunda og níunda áratugnum. Til
gamans má jafnframt nefna að móðir Ög-
mundar er Guðrún Ögmundsdóttir borgarfull-
trúi Kvennalistans.
Með Ögmundi eru bassaleikarinn Kjartan
Guðmundsson og söngvarinn Ölvir Gíslason.
Þeir voru áður í hljómsveitinni Tálknbogunum.
Til viðbótar muna eflaust einhverjir eftir þeim i
forkeppni söngvakeppni framhaldsskóianna.
Músíkstíll tríósins er ekki auðskilgreindur.
Hvernig skýra þeir sjálfir músík sína?
„Þetta er kántrípopp," segir Ögmundur.
Hinir eru á öðru máli. Niðurstaðan er sú að
þetta sé lauflétt þungarokk.
„Unplugged", segir Ögmundur til nánari
skýringar og vísar á geysivinsæla músíkþátta-
syrpu á sjónvarpsstöðinni M.T.V. í þeim þátt-
um skemmta kunnir rokkarar á borð við Eric
Clapton, Arrested Development og Rod
Stewart við órafmagnaðan undirleik.
Á hvernig músík hlusta drengirnir annars?
„Ölvir hlustar á kántrí,“ fullyrðir Ögmundur.
„Kenny Rogers er hans maður. Við erum
hrifnir af Sverri Stormskeri. Einnig alls konar
popptónlist, diskói og tölvupoppi eins og
Leiktækjasalnum meö Magnúsi og Jóhanni."
Að lokum: Hvar geta skólar, vinnustaðir og
aðrir náð þessari framsæknu hljómveit til að
skemmta hjá sér?
„Til dæmis hjá mér,“ svarar Ögmundur.
“Síminn er 18407.“
Léttrokklagið Frjáls, með Vinum vors og
blóma, er í sveitaballastíl og allsæmilegt sem
slíkt. Tvö lög úr Evrópusöngvakeppninni eru á
skjön við annað efni á plötunni, bæði frekar
bragðdauf.
Hefðbundin einkunnagjöf hentar ekki alltaf
safnplötu með ólíkum flytjendum. Fyrst sex
lög plötunnar Heyrðu 3 fá einkunnina 9,0 en
seinni hlutinn einkunnina 5,0. Meðaleinkunnin
er þá í námunda við 7,0.
jkg
Æ S K A N 4 7