Æskan - 01.04.1994, Qupperneq 54
hræddir um að aðrir yfirgefi þá. Urr
merkir hótun eða að hundurinn
treysti engum; öryggisleysi og hótun
eru gefin til kynna með sama hljóði
en af skottinu og svipnum má ráða
um hvort sé að ræða.
AÐ TALA VIÐ HUND
Hundar vilja oft horfast í augu við
eigendur sína. Ef maður lítur ekki í
augu hunds sem leitar eftir augum
manns er það svipað því að svara
ekki þeim sem talar við mann. Þó á
ekki að stara í augu hunds. Það
merkir hótun. Líttu undan með jöfnu
millibili. Þá finnst hundinum þú kurt-
eis!
Hundar vilja gjarna sleikja oft og
mikið þá sem þeim þykir vænt um.
Maður á alltaf að taka því hlýlega.
Hundurinn vill finna að hann sé met-
inn að verðleikum. Ef maður ýtir frá
sér hundi, sem vill sleikja mann,
metur hann það þannig að manni sé
ekki að treysta.
FÁÐU LEYFI HJÁ
EIGANDANUM
Við gleymum stundum að hundar
eru ekki fólk. Sumir krefjast þess af
hundi sínum að hann skammist sín
lengi ef hann hefur gert eitthvað
rangt. En hundum er það ekki eðli-
legt. Þeir sýna að þeir eru beygðir,
vilja að þeim sé fyrirgefið og verða
jafnskjótt bestu vinir manns aftur.
Með því að krefjast skömmustu af
hundi er auðvelt að rjúfa trúnaðar-
traust.
Margir eru hræddir við hunda. Á
þeirri hræðslu má vinna bug með því
að læra táknmál þeirra og venja sig
við að umgangast góða hunda. En
aldrei ætti að heilsa hundi með því
að stara í augu hans og klappa hon-
um á höfuðið. Rétt er að láta hund-
inum eftir að ákveða hvort hann vill
heilsa manni, komatil manns.
Þú átt alltaf að spyrja eiganda
hunds hvort þú megir klappa hon-
um. Þú þarft ekki að skammast þín
fyrir það. Allir skynsamir hundaeig-
endur spyrja sjálfir að þessu. Og
eigandinn vill að þú spyrjir áður en
þú heilsar hundi hans af því að hann
þekkir hann best sjálfur.
(Byggt á grein í finnska barnablaðinu
EOS. Höfundur: Susse Dunderfelt).
SAMKEPPNI:
ÍSLANDSFERÐ
FIÖLSKYLDUNNAR
LÝST í MÁLI OC MYNDUM
Eflaust ferð þú með fjölskyldu
þinni um fallega landið okkar í sum-
ar. Þá er tilvalið að taka þátt í sam-
keppni Æskunnar um lýsingu á ferð-
inni í máli og myndum. Ekki skiptir
máli hvort farið er langt eða skammt.
Alltaf er hægt að segja frá einhverju
sem vekur athygli eða veitir ánægju
- hvort sem skoðaður er merkur
sögustaður eða smáblóm sem vex í
urð, gengið er á fjall eða um fjöru,
róið á báti eða buslað í laug. Myndir
má taka með vél eða teikna á blað.
VIÐURKENNINGAR OG
VERÐLAUN
Allir sem senda slíka lýsingu á
ferð fjölskyldunnar vinna til vióur-
kenningar. Þeir fá skjal sem vottar
hana.
Auk þess veitum við þrenn verð-
laun. Þau eru:
1. Tveggja manna kúlutjald frá
Lichfield (Falcon 180)
2. Bakpoki frá Karrimor (Panther
60)
3. Svefnpoki frá Ajungilak (Scout
Lux)
- allt úrvalsvörur frá Skátabúðinni.
Nokkrar frásagnir verða birtar í
Æskunni.
Island
SAMGÖNGURÁÐUNEYTIÐ
SKILAFRESTUR
er til 10. september nk.
Nægur tími er til stefnu en mundu
að skrifa hjá þér allt skemmtilegt og
markvert í öllum ferðum fjölskyld-
unnar um landið í sumar.
AFMÆLI ÍSLENSKA
LÝÐVELDISINS
- ÁR FJÖLSKYLDUNNAR
Kynningarriti um íslandsferð fjöl-
skyldunnar hefur verið dreift til allra
heimila í landinu. Ég býst við að þú
hafir flett því. Þar má t.a.m. finna
dagatal með lýsingum á margs kon-
ar skemmtunum, skoðunarferðum, í-
þróttamótum og ótal mörgu öðru
sem efnt er til um allt land í sumar.
Samgönguráðuneytið gaf ritið út
með stuðningi nokkurra aðilja, eink-
um Mjólkursamsölunnar og Olíufé-
lagsins hf., Esso, en þau fyrirtæki
leggja mest til kynningar á þessu
verkefni ráðuneytisins.
VERTU MEÐ!
Varðveittu góðar minningar með
því að skrifa um þær og skreyta með
myndum! Sendu svo blaðinu þínu
lýsingu þína á ferð um landið þitt!
Við sendum þér hana aftur - með
viðurkenningarskjali og kannski veg-
legum verðlaunum.
4
ísland
SAMGÖNGURÁÐUNEYTIÐ
S 4 Æ S K A N