Valsblaðið - 01.05.1989, Blaðsíða 27

Valsblaðið - 01.05.1989, Blaðsíða 27
VALSKONUR Komið þið sæl! Af okkur Valskonum er allt gott að frétta. Eftir mikið fjör í starfi hjá okkur árið 1988, þar sem við fræddumst um stjörnuspeki, kynlíf og allt það sem gerist þegar við kveðj- um þennan heim, hefur verið frekar rólegt hjá okkur þetta árið. Við byrjuðum eins og vanalega í janúar með því að hafa jólaball fyrir börnin okkar og annarra Valsmanna. Þessi jólaböll hafa alltaf mjög vel sótt og mikið um fjör á þeim — eins var í þetta skipti. Jólasveinninn hafði rakað sig heldur mikið um jólin og var þess vegna skegglaus. Ekki var neinn annar jóla- sveinn á lausu þennan dag, svo jólasveinninn tók það til ráðs að nota trefil í staðin fyrir skegg. Hann leit því frekar út fyrir að vera kú- reki úr bandarískum vestra en íslenskur jóla- sveinn. Aðalfundurinn hjá okkur var haldinn á sjálfan bjórdaginn 1. mars. Átti nú að tæla Valskonur á fundinn með þessum lángþráða vökva. Ekki heillaði bjórinn meira en svo að aðeins mættu 12 Valskonur að meðtalinni stjórninni sem í voru 7 konur. Formaður Vals, Jón Zoéga mætti á aðalfundinn og fræddi okkur um starf annarra deilda innan Vals. Einnig óskaði hann eftir því að Valskonur hjálpuðu til með að fá ný húsgögn í nýju kaffistofu félagsins en þar sem sjóður okkar er frekar rýr, eins og hjá öðrum þessa dagana, var byrjað á að kaupa bolla, drykkjarkönnur og hnífapör. Hefur þetta vonandi komið sér vel þegar Valsmenn og gestir þeirra hafa feng- ið sér kaffi og meðlæti. Átti nú að fara fram stjórnarkjör og hafði stjórnin mikinn áhuga á að verða leyst frá störfum en þar sem svo fá- ar voru mættar gekk stjórnarmeðlimum frek- ar illa að fá einhverja í sinn stað. Svana, Jó- hanna og Sigríður lögðu mjög mikla áherslu að verða leystar frá störfum og komu Ása og Sóley í þeirra stað. Stjórn Valskvenna 1989 er þannig skipuð: Bryndís Hreinsdóttir, formaður Ingibjörg Kristjánsdóttir, gjaldkeri Ása Kristjánsdóttir, ritari Esther Magnúsdóttir Guðlaug Ólafsdóttir Sóley Ingadóttir Eftir stjórnarkjör og þegar Jón Zoéga hafði sannfært okkur um mikilvægi Vals- kvenna innan Vals var drukkinn bjór og að sjálfsögðu gengum við svo heim. Þann 11. maí vorum við beðnar um að sjá um veitingar á 78 áia afmæli Vals. Þegar borðin svignuðu undan kökum og öðru góð- gæti sem Valskonur höfðu bakað var mál manna að Valskonur væru ómissandi innan félagsins. Við höfðum ákveðið að enda vetrarstarfið SKÝRSLA VALSKVENNA Esther, Emelía, Margrét, Magdalena, Sigríður og Guðlaug tóku iagið. þann 28. maí með þvi að fara upp í okkar kæra Valsskála. Þar átti að fara í leiki, grilla pyslur og renna þeim niður með gosi — sem sagt eiga skemmtilegan dag í Valsskálanum. En vegna þess að snjóað hafði langt fram á vor, var ófært að skálanum og ferðinni því frestað um um tíma. Vonandi verður ferðin farin einhvern daginn þegar vel viðrar. Vetrarstarfið hófst hjá okkur 8. nóvember með því að við ákváðum að vera myndarlegar fyrir jólin og byrja strax að koma okkur í jólastuð með því að taka fram handavinnu. Mættu nú Valskonur með allt sitt jólaföndur til að gefa öðrum hugmyndir. Guðlaug setti hrærivélina í gang og bjó til deig og var byrj- að að búa til alls konar aðventukransa og annað jólaskraut úr þessu. Þegar okkar list- rænu hendur höfðu leikið um þetta var lista- verkið sett ofan í ofn og bakað. Þegar komið var heim var þetta vel falið svo ekki yrði búið að borða jólaskrautið fyrir jólin. Ekki er vafi á að heimili okkar Valskvenna verða vel skreytt um jólin. Eins og venjulega í desmber var hið sívin- sæla jólaglögg okkar Valskvenna haldið 8. desember. Mikið var um fjör það kvöld þótt jólaglöggið hafi ekki borið sitt barr síðan það var haldið upp í Valsskála um árið og er enn í minnum haft. Sem sagt, alltaf nóg að gera hjá okkur Valskonum þótt mæting mætti vera betri og nýjir félagar eru mjög vel þegnir. Fyrir hönd Valskvenna Ingibjörg Krisljdnsdóllir Björg og Jóhanna skemmtu sér vel í jólaglögg- inu. Ása og Ingibjörg fylgjast með. Ása Kristjánsdóttir hafði heppnina með sér þeg- ar dregið var í happdrætti kvöidsins. 27
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Valsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.