Valsblaðið - 01.05.1989, Blaðsíða 28

Valsblaðið - 01.05.1989, Blaðsíða 28
„KÓNGSINS KÖBEN“ Ferðasaga 7. og 8. flokks í körfubolta Svali Björgvinsson skrifar Það var að morgunlagi 22. mars síðastlið- ins að tuttugu piltar úr 7. og 8. flokki Vals í körfubolta ásamt þremur fararstjórum mættu eldhressir að Hlíðarenda. Mikill galsi var í mannskapnum og á hálstauinu mátti ráða að eitthvað stóð til (allir voru með spar- islifsi). Ferðinni var heitið til höfuðborgar Danaveldis, til að taka þátt í hinu árlega körfuboltamóti fyrir táninga — Codan cup. Þetta árið tóku hátt í 300 lið þátt í mótinu og sendu Valsmenn tvö lið í keppnina. Þeir tutt- ugu strákar sem fóru út skipuðu tvö jafnsterk lið og léku liðin í sitthvorum sex liða riðlin- um. Riðlarnir á mótinu voru fjölmargir. í hverjum riðli léku öll liðin innbyrðis. Tvö efstu lið hvers riðils komust áfram í úrslita- keppnina en þau lið, sem lentu í öðru sæti í sínum riðli, þurftu að keppa aukaleik til að komast í 12 liða úrslit. Á leiðinni til Keflavíkur og í flugvélinni voru undirstöðuatriði danskrar tungu rifjuð upp og Óli Rafn kenndi hvernig beita á tung- unni til að ná hinum fágaða danska fram- burði sem hann er svo þekktur fyrir. Haf- steinn söng nokkur vel valin dönsk ættjarðar- lög, t.d. hið þekkta HELO HAFSTEN. Haf- steinn (sea-stone) var yfirfararstjóri og bankastjóri ferðarinnar — maður sem þekkir Kaupmannahöfn betur en lófana á sér. (Haf- steinn er þekktur fyrir að þekkja lófana á sér frekar illa!) Annar fararstjóri og sérstakur fulltrúi heilbrigðisgeirans var Björn Zoéga, sem gekk undir dulnefninu Bjössi í þessari ferð. Greinarhöfundur var svo þriðji farar- stjórinn og þjálfari liðanna að auki — maður ættaður úr Hlíðunum. Eftir að komið var til Kaupmannahafnar og Robbi og Hafsteinn höfðu rætt vinalega um bestu leiðina að skólanum þar sem við gistum, fórum við og heimsóttum Jörgen pizzusala. Jörgen þessi er glaðvær maður og úrvals kokkur og því lá leið okkar oft til hans þá daga sem við vorum úti. Annan dag ferðarinnar hófst svo sjálf keppnin og var fyrsti leikur Vals gegn banda- ríska liðinu Dayton. Þrátt fyrir ágæta frammistöðu töpuðum við þessum fyrsta leik okkar 35:40 Annars urðu úrslit leikja Vals í undanriðl- unum eftirfarandi: LIÐ 1 Valur — Geb 2 97:14 Valur — Sisu 52:36 Valur — Herlev 39:32 Valur — Lurup 62:20 Valur — Hörsholm 1 78:14 LIÐ 2 Valur — Dayton 35:40 Valur — Sudwest 38:36 Valur — SBBK 2 39:38 Valur — Helsungör 2 77:23 Valur — Lundby 75:23 Lið 1 komst því beint í 12 liða úrslit en lið 2, sem tapaði einum leik í sinum riðli, þurfti að keppa einn aukaleik um sæti í 12 liða úr- slitum. Á milli leikja og á kvöldin höfðust sprell- fjörugir Valsmenn ýmislegt við og af vinsæl- um skátaleikjum má nefna armbeygjukeppni sem ísó vann með yfirburðum, sjómanns- keppni sem reyndi á karlmennsku ungu pilt- anna og kepptu þar til úrslita vöðvafjallið úr 8. flokki, Óli Rafn og austfirski harðjaxlinn Kalli úr 7. flokki. Ótrúleg spenna ríkti í her- búðum Valsmanna fyrir þessa keppni hvor skyldi hljóta hinn hrikalega titil „Sjó- manns-champ”! Eftir 27 sekúndna baráttu lagði Kalli Óla og ákvað Óli að fá sér göngu- túr um ganga skólabyggingarinnar, sem við gistum í, til að jafna sig eftir ósigurinn. Yfirleitt þurftum við að vakna snemma á morgnana en það reyndist erfitt sökum galsa kvöldið áður. Einnig vakti það athygli þegar þolinmóður Hafsteinn tók sig til við að kenna Þjóðverjum, sem sváfu í sama sal og við, rammíslensk vögguljóð með góðum árangri. Laugardaginn 25. mars hófst svo úrslita- keppnin og þurfti lið 2 að byrjaá því að keppa aukaleikinn við danska liðið Sisu um hvort þeirra kæmist í 12 liða úrslit. Þessi leikur vannst eftir geysilega spennu, 37:36, og kom- ust bæði lið okkar því í 12 liða úrsliL Lið 1 lenti á móti þýska liðinu Rist Wedel og má til gamans geta að minnsti maður í byrjunarliði þeirra var stærri en okkar stærsti maður. í hálfleik vorum við 15 stigum undir en í seinni hálfleik náðum við að saxá for- skotið. Þrátt fyrir frábæran leik töpuðum við 28
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Valsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.