Valsblaðið - 01.05.1989, Blaðsíða 32

Valsblaðið - 01.05.1989, Blaðsíða 32
flokk og meistaraflokk, lét Geir Sveinsson og Jakob æfa með meistaraflokki. „Við höfðum mjög gott af því að æfa með meistaraflokki en þá voru allir þessir frægu úr mulningsvél- inni enn að Handboltamenn hita iðullega upp í fótbolta og ég man að ég var oftar en ekki smurður upp við rimlana þegar ég hætti mér of nálægt Jón Pétri, Gísla Blöndal og þessum skriðdrekum.” Á sínu fyrsta ári í 2. flokki lék Jakob svo sinn fyrsta leik á Islandsmóti með meistara- flokki. Frumraunin var gegn KA í Laugar- dalshöll og skoraði Jakob 7 mörk í leiknum. „Fyrir þennan leik var ég búinn að spila eitt- hvað í Reykjavíkurmótinu og Islandsmótinu utanhúss þannig að ég var ekki alveg grænn. Gunnar Lúðvíksson lék sömu stöðu og ég — og þennan vetur skiptumst við á að leika í horninu. Næsta vetur varég fastamaður í lið- inu en Gunnar hættur því hann átti m.a. við bakmeiðsli að stríða” — Áttir þú þér einhverjar fyrirmyndir á þínum yngri árum? „Ég lá aðallega yfir spólum með erlendum stórstjörnum. Ég átti heimsmeistarakeppn- ina 1982 á spólu og lærði mikið, að ég held, á þvi að horfa á þessa karla. Jú, ég hélt upp á nokkra erlenda hornamenn og sérstaklega þessa sovésku. Bjarni Guðmundsson var líka ákveðinn fyrirmynd því hann var og er sterk- ur hornamaður.” Jakob hefur leikið hátt á þriðja hundrað meistaraflokksleiki með Val og landsleikirnir eru samtals 183 en ég spurði hvert væri eftir- minnilegasta tímabilið með Val til þessa. „Það er án efa keppnistímabilið 1987—88 — það er engin spurning. Forsaga þess tíma- bils var dálítið sérstök því nokkrir leikmenn ásamt þeim Pétri Guðmundssyni og Þórði Sigurðssyni, báru hitann og þungann af því að ráða þjálfara fyrir tímabilið með skömm- um fyrirvara og mikil uppstokkun var í lið- inu. Keppnistímabilið var einstaklega erfitt og spennandi og var hreint stórkostlegt að tryggja sér Islandsmeistaratitilinn á Hlíðar- enda í hreinum úrslitaleik gegn FH. Það, sem var líka svo skemmtilegt, var að þetta var fyrsti veturinn sem leikið var í íþróttahúsinu. Úrslitaleikurinn endaði 26:23 sællar minn- ingar og við urðum íslands- Reykjavíkur- og bikarmeistarar.” — Hvað með liðið í fyrra sem varð einnig Islandsmeistari? „Það var í raun sterkara lið en árið áður þegar litið er á einstaklinganna en vonbrigðin í Evrópukeppninni urðu svo mikil. Það var búið að gera 2—3 ára áætlun með liðið um að ná toppárangri á Evrópumælikvarða en sú áætlun raskaðist vitanlega um leið og Siggi, Júlli og Geiri heldu utan.” — Heldurðu að liðið í fyrra hafi verið sterkara en hin eina sanna mulningsvél? „Já, svo tel ég veta — með fullri virðingu fyrir leikmönnum mulningsvélarinnar. Það er alltaf erfitt að bera saman lið tveggja ólíkra aldursskeiða en samt tel ég liðið í fyrra hafa verið sterkara!’ — Heldurðu að Valsliðið sé loks búið að finna taktinn í dag eftir fremur brösuga byrjun? „Já, ég held þaá Það hefur verið stígandi í hverjum leik hjá okkur þótt okkur hafi ekki tekist vel upp í Evrópukeppninni. Við áttum Jakobi Sigurðssyni hefði ekki veitt af því að vera með vængi í Evrópuleiknum gegn Rabha Eto í Laug- ardalshöllinni á dögunum þvi Valsmönnum gekk afleitlega í leiknum. í erfiðleikum með varnarleikinn en nú er búið að setja fyrir þann leka. Við vorum líka í erf- iðleikum í sókninni en þegar við hættum að leika eingöngu kerfisbundið fóru hlutirnar að ganga upp. í sigurleiknum gegn FH lékum við frjálsan bolta og þá sýndu menn sínar réttu hliðar. Við höfum tæknilegum mönn- um á skipa sem búa yfir mikilli reynslu og slíkir menn geta leikið frjálsan sóknarleik. Að mínu mati á ekki bara að byggja hand- bolta upp á taktík eins og er mjög algengt á Islandi.” — Verður Valur íslandsmeistari í handbolta? „I dag stefnum við á hvern leik fyrir sig og það eitt er nægt verkefni hverju sinni. Það er svo margt sem getur spilað inn í heilt íslands- mót og því er ógjörningur að segja til um framhaldið. Við þurftum að byrja alveg frá grunni í haust — vorum með nýja menn i ann- arri hverri stöðu. I liðinu fram til þess tíma léku menn sem voru búnir að vera saman frá 14 ára aldri. Það er alveg ljóst að maður full- mótar ekki lið á einu ári. Auk þessa æfðum við varla allir saman nema á síðustu 5 æfing- unum fyrir mótið. Júlíus og Finnur voru með 21 árs landsliðinu á Spáni og Jón var í fótbolt- anum þarnnig að ýmis vandamál steðjuðu að í upphafi. I raun er það mjög gott að hafa hreinlega ekki tapað fleiri stigum til þessa.” íslandsmeistarar 3. flokks í knattspyrnu árið 1979. Aftari röð frá vinstri: Jóhann Larsen þjálfari, Gísli Bjarnason, Ingólfur Helgason, Kristján Þórðarson, Leifur Gústafsson, Geir Sveinsson, Jakob Sig- urðsson, Brynjar Gauti Sveinsson, Hciðar Friðjónsson, Birgir Kriðjónsson, Björgvin Hermannsson umsjónarmaður. Fremri röð frá vinstrí: Sigurður Sigurðsson, Fannar Jónsson, Björgvin, Karl Hjálm- arsson, Jóhann Holton, Ágúst, Magnús Ásmundsson, Ólafur Jósephsson (stendur) og Jón Scheving Thoisteinsson. 32
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Valsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.