Valsblaðið - 01.05.1989, Blaðsíða 61
WALTER GEIR
GRIMSSON
Leikmaður 5. flokks
í handbolta
Walter Geir er 12 ára gamall en hann byrj-
aði að æfa handbolta á eldra ári í 6. flokki.
„Ég hélt eiginlega fyrst með KR en þar sem
Bjarni bróðir minn er í Val ákvað ég líka að
fara í Val.”
Walter byrjaði líka í fótbolta en hætti
fljótt. „Mér fannst ég bara lélegur í fótbolta
og hætti strax. í handboltanum leik ég í
vinstra horninu og finnst það ofsalega gam-
an.”
Walter er fastamaður í A-liðinu en á dög-
unum varð 5. flokkur Reykjavíkurmeistari er
það lagði ÍR að velli í úrslitaleik 10—7. „Ég
held að ég hljóti að hafa tekið einhverjum
framförum að undanförnu en þjálfari minn
er Valdimar Grímsson. Hann er mjög góður
og skemmtilegur þjálfari og ég held mest upp
á hann í handboltanum. Helst vildi ég æfa
þrisvar sinnum í viku en við æfum bara tvisv-
ar.”
Walter segir að það sé dálítill rígur á milli
hans og Bjarna bróður því hann er 13 ára og
æfir líka handbolta með Val. Þeir leika í sama
flokki annað hvert ár en þá er Walter vitan-
lega á yngra ári. „Það eru þrjár túrneringar
eftir í vetur hjá okkur og ég vona að við kom-
umst upp í 1. deild í næstu túrneringu.”
Walter segist ætla að æfa handbolta af
krafti næstu árin og stefnir vitanlega á topp-
inn en hann er alveg óráðinn í því hvað hann
ætlar að læra í framtíðinni.
GERÐUR
JÓHANNES-
DÓTTIR
Leikmaður 4. flokks
í handbolta
Fyrirliði 4. flokks í handbolta heitir Gerð-
ur Jóhannesdóttir. Hún var fyrst spurð
hvernig það væri að vera fyrirliði. „Það er allt
í lagi. Ég geri fátt annað en að heilsa dómara
enn sem komið er. Kannski breytist það
seinna!’
Handboltaiðkun Gerðar hófst þegar hún
var 10 ára gömul en þá mætti hún ásamt vin-
konu sinni á æfingar með 3. flokki. 3. flokk-
ur er skipaður 16 ára gömlum stelpum og því
dundaði Gerður sér með bolta úti í horni
ásamt vinkonu sinni.
„Þetta er eiginlega fyrsti veturinn sem 4.
flokkur keppir í handbolta. í fyrravetur átti
Stanislaw að þjálfa okkur en hann mætti 4
sinnum allan veturinn. Það var því mikil upp-
lausn í flokknum þar til Katrín Friðriksen tók
við okkur í haust. Núna höfum við því þjálf-
ara, keppum á móti og þetta er allt annað líf.
Við leikum i 3. riðli í túrneringunum og síðast
höfnuðum við í 4. sæti. Okkur fer stöðugt
fram að mínu áliti.
Fyrsti leikur Gerðar með 4. flokki var gegn
KR á Reykjavíkurmótinu. „Við töpuðum 4:20
en öllum fannst við hafa staðið okkur vel því
við vorum að spila okkar fyrsta leik.”
Á sumrin hefur Gerður verið í sveit í Fljóts-
hlíð en þar hefur hún æft frjálsíþróttir. Hún
er því íþróttamanneskja fram í fingurgóma
og kemst fátt annað að hjá henni. „Annars
hef ég líka mikinn áhuga á hestum og ferða-
lögum!’
Gerður segist vera mjög ánægð með ung-
lingastarfið hjá Val þessa stundina og segir að
margt sé gert fyrir flokkinn hennar. „Við höf-
uni verið að pakka inn bókum Halldórs Lax-
ness og selja jólarósir til fjáröflunar þannig
að það er í mörg hom að líta.”
Alfreð Gíslason er í uppáhaldi hjá Gerði en
hún segist vitanlega stefna á það í framtíðinni
að komast í meistaraflokk.
BREKI JOHNSEN
Leikmaður 4. flokks í
fótbolta og 5. flokks
í handbolta
Breki Johnsen er 12 ára gamall og enginn
venjulegur markaskorari. Síðastliðið sumar
skoraði hann í hverjum einasta leik sem hann
tók þátt í með 5. flokki — samtals 62 mörk
en hann er núna genginn upp í 4. flokk. „Jú,
eflaust er ég markagráðugur en verða fram-
línumenn ekki að vera það? Mest skoraði ég
gegn Þrótti á Peyjamóti í Vestmannaeyjum
eða 5 mörk. Þar var ég eiginlega á heimavelli
því pabbi minn er Vestmannaeyingur.”
Breki varð Reykjavíkurmeistari með 5.
flokki síðastliðið vor og sömuleiðis Reykja-
víkurmeistari í handbolta með 5. flokki um
daginn. „Ég leik í vinstra horninu í handbolt-
anum en ég er ekki fastamaður í liðinu. Eigin-
lega þykir mér skemmtilegra í fótbolta því ég
er betri að sparka en kasta. Annars var dálítið
skrýtið síðastliðið haust að við vorum ekki
með neinn þjálfara í innanhússfótboltanum
en svo tók Róbert Jónsson við okkur. Núna
æfi ég tvisvar handbolta og tvisvar fótbolta í
viku.”
Breka líst vel á næsta sumar í fótboltanum
en segir að það verði dálítið erfitt að vera á
yngra ári í 4. flokki. „Maður verður bara að
láta sig vaða í þetta og gera sitt besta til þess
að komast í lið.”
Hann segist langa til þess að verða atvinnu-
maður í fótbolta en uppáhaldsliðin hans eru
Tottenham og Arsenal. „Ég held eiginlega
mest upp á Ásgeir Sigurvinsson og Sigurð
Jónsson.”
Áhugamál Breka fyrir utan boltagreinarn-
ar er skíðaiðkun og svo hefur gaman af að
ferðast. „Ég hef komið til Þýskalands, Lux-
emborgar, Frakklands, Spánar og svo hef ég
10 sinnum farið til Flórída. Mamma er nefni-
lega flugfreyja.”
61