Valsblaðið - 01.05.1989, Blaðsíða 35

Valsblaðið - 01.05.1989, Blaðsíða 35
Ólafur og Guömundur voru mikilvægir hlekkir í liði 4. flokks sem varð íslandsmeistari í knattspyrnu ir góðir knattspyrnumenn úr Reykjavík að á Sandi og unnu við stöðuna. Ég minnist sér- staklega Harðar Felixsonar sem nú er látinn en hann lék með Val hér áður fyrr með góðum árangri. Ég flutti frá Hellissandi til Reykjavíkur árið 1968 og var keppnismaður í körfubolta í eittár í 1. deild með KFR (Körfuknattleiks- félag Reykjavíkur). Flestir strákar þess liðs stofnuðu síðan körfuknattleiksdeild Vals árið 1970 að mig minnir. Meðal þeirra voru Þórir Magnússon, Sigurður Helgason, Óli Toll, Guðmundur Hallgrímsson og Einar Matt. — Varstu góður í körfubolta? „Ég þótti efnilegur en staldraði stutt við í boltanum því ég sótti sjóinn og hvarf þar með af fjölunum áður en frægðarljóminn náði að skína á mig,” segir Binni og brosir. Brynjólfur var stjórnarmaður í körfu- knattleiksdeild Vals á árunum 1984-1989 og strax á sínu fyrsta stjórnarári stuðlaði hann að því að strákarnir, Ólafur og Guðmundur, sem höfðu eingöngu æft fótbolta fram til þess tíma, fóru líka að æfa körfubolta. „Ég hef alltaf haft meiri áhuga á að sinna yngri flokkum ValsJ’ segir Brynjólfur. „Auðvitað er það vegna þess að mér þykir gaman að fylgjast með strákunum en líka vegna þess að yngri keppendur höfða meira til mín.” En hvað með Jóhönnu — húsmóðurina sem stendur eins og klettur við hlið „bolta- strákanna”. Hvar stendur hún í pólitíkinni í íþróttunum? „Ég var Frammari en fékk vitaskuld ekki að vera það lengi. Ég ólst upp í Fram-hverfinu en mér snérist hugur um leið og strákarnir byrjuðu að æfa með Val.” Ólafur og Guðmundur hófu knattspyrnu- feril sinn í ÍR en dvöldu þar ekki lengi. „Þjálf- arinn svaf alltaf yfir sig þannig að við fengum alveg nóg af félaginu,” segir Guðmundur. „Við kenndum þeim hvernig átti að komast niður í Valsheimili með strætó og sendum þá í Val,” segir Binni stoltur. „Það var ekkert vit í því að hafa þá óánægða í ÍR þótt stutt væri að fara.” — Strákar munið þið eftirykkar fyrstu æf- ingu hjá Val? 1989. „Já, Halldór Halldórsson var þá þjálfari og við æfðum fyrir neðan grasvöllinn á drullusvæði. Núna er komið þar fínt æfinga- svæði. Það var ekkert erfitt að byrja að æfa með Val því við höfðum alltaf haldið með Vai:’ — Hefur nokkurn tímann liðið dagur án þess að þið hafið annað hvort leiki ykkur í fótbolta eða körfubolta? „Nei, það held ég varla,” segirGuðmundur og Ólafur samsinnir því. Þess má geta að strákarnir hafa borið út Morgunblaðið frá 10 ára aldri, 70 blöð hvor, sex daga vikunnar. Þeir fara á fætur rétt fyrir klukkan sjö ogsinnaskyldunum, hvernigsem viðrar. „Þetta er ágætt en auðvitað erum við stundum þreyttir. Við erum oftast um hálf- tíma að bera út þessi 140 blöð.” Eins og áður sagði voru Ólafur og Guð- mundur máttarstólpar í hinu sigursæla liði 4. flokks síðastliðið sumar og kræktu sér í sinn fyrsta íslandsmeistaratitil. Áður höfðu þeir einu sinni hafnað í 2. sæti á íslandsmótinu en 5 sinnum í 2. sæti í körfuboltanum með Val. „Oftast höfum við tapað fyrir Keflavík og við erum búnir að leika svo oft við þá í körfu- bolta og fótbolta að þeir eru bara orðnir hinir bestu kunningjar okkar. Margir sömu strák- anna spila bæði körfubolta og fótbolta í Keflavík og lenda því svo oft á móti okkur. Þeir buðu okkur meira að segja í heimsókn og mat síðastliðinn vetur á milli leikja” í úrslitaleik 4. flokks í sumar sigraði Valur FH 5:0 og skoraði Guðmundur þrjú mörk í leiknum. Báðir hafa þeir verið valdir leik- menn ársins í sínum flokki í körfubolta og hefur Guðmundi hlotnast sá heiður tvisvar en Ólafi einu sinni. Ekki vildu þeir gera upp á milli íþróttagreinanna og sögðu að á veturna væri körfuboltinn skemmtilegri en fótboltinn á sumrin. Svo mörg voru þau orð. Brynjólfur kom inn á umræðuna um for- eldrastarf í Val og sagði að foreldrar ættu, að hans mati, að taka meiri þátt í starfinu í félag- inu. „Fólk verður að fara að átta sig á því hversu gífurlegt uppeldislegt gildi íþróttir hafa fyrir börnin. I íþróttum læra börn og unglingar að taka tillit hvert til annars og þau öðlast mikilvægan þroska í íþróttum. Nú á tímum færist ofbeldi, eiturlyf og önnur leið- indi sífellt í vöxt og eru krakkar því hvergi bet- ur geymdir en hjá íþróttafélögunum. Foreldr- ar verða að fara að átta sig á þessu innan tíðar og leggja sitt af mörkum” — Jóhanna, hvað finnst þér? „Já, ég er innilega sammála þessu og ég hef kynnst konum sem hafa tekið þátt í foreldra- starfinu í síauknum mæli og líkað það vel þótt þær hafi ekki haft mikinn áhuga á íþróttum sjálfar. Þær hreinlega smitast af starfinu og félaginu þegar þær koma niður að Hlíðarenda. Foreldrar verða að fara að átta sigá því hvað liggur að baki þess að krakkarn- ir þeirra segi; „bless ég er að fara á æfingu.” íþróttafélögin eru að ala upp unglingana og þau þurfa allan þann stuðning sem völ er á.” — Hvernig er að halda heimili sem er yfir- fullt af íþróttamönnum? „Það er ánægjulegt því ég er mjög ánægð með það að mitt fólk sé íþróttalega sinnað. Auðvitað er varla um fasta matmálstíma að ræða og þvottavélin yfirleitt úttroðin en ég set það ekki fyrir mig. Ég hef mikla ánægju af þessu öllu saman.” Tvíburarnir Ólafur og Guðmundur — eða var það Guðmundur og Ólafur? Ólmundur er kannski best? 35
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Valsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.