Valsblaðið - 01.05.1989, Blaðsíða 58

Valsblaðið - 01.05.1989, Blaðsíða 58
FARANDBIKAR 2. FLOKKS Sú nýlunda var tekin upp á uppskeru- hátíð knattspyrnudeildar í nóvember síðastliðnum að afhentur var bikar sem Kristján Bernburg, fréttamaður DV í Belgíu og fyrrum þjálfari yngri flokka Vals, gaf. Bikarinn varðveiti í eitt ár sá leikmaður 2. flokks, á síðasta ári í flokk- um, sem hefur sýnt mikla foystuhæfi- leika og stuðlað að heilbrigðum keppnis- anda í yngri flokkum Vals. Stjóm knatt- spyrnudeildar hafi umsjón með vali leik- mannsins og feli hún þriggja mann nefnd að sjá um valið ár hvert. Auk þess hefur nefndin samráð við þjálfara og liðsstjóra yngri flokkanna. Að þessu sinni féll bikarinn Steinar Degi Adolfssyni í skaut og kemur það fæstum á óvart. Steinar hefur verið lykil- maður í 2. flokki um þriggja ára skeið og æft með meistaraflokki síðustu tvö árin. Hann vann sér fast sæti í byrjunarliði meistaraflokks þegar leið á síðastliðið sumar og sýndi þá að sannaði að hann er framtíðarmaður í liði Vals. Valsblaðið óskar Steinari og Ólafsvíkingum til hamingju með árangurinn. Steinar Dagur Adolfsson YNGRI VALUR 1916 Á aðalfundi Vals í apríl 1916 var mikið rætt um að stofna deild fyrir yngri félaga í Val og var skipuð nefnd til að annast málið. Ákveðið var að leita samstarfs við Væringja, sem var deild innan KFUM, og því eðlilegt að drengir þaðan gengju í Val. Vann nefndin ötullega að málinu og í ágúst var deildin „Yngri Valur” stofnuð með 13 ungum drengjum úr KFUM. Deildin hafði 2 æfingar í viku með góðum árangri og virtist hún geta orðið góð uppeldisstofnun fyrir unga drengi í knattsparki. Er ekki ósennilegt að þetta skref, sem tekið var með því að stofna „Yngri Val” á þessu augnabliki, hafi bjargað því að félagið lognaðist útaf um 1920. Þá átti félagið í miklum erfið- leikum þar sem þeir eldri voru nær allir hættir að keppa. Það var því mikið heillaspor stigið og það sannar áþreifan- lega að aldrei má gleyma því að maður verður að koma í manns stað, ef framtíð- in á að vera tryggð. Þetta skynjuðu þessi ágætu brautryðjendur og höguðu sér samkvæmt því. Eftirtalin fyrirtæki óska Valsmönnum gleöilegra jóla og farsældar á komandi ári. Eimskip hf. Pósthússtræti 2 Guðmundur Arason Skútuvogi 4 Lýsi hf. E.TH. Mathíesen hf. Bæjarhrauni 10, s. 651000 Skífan hf. Efnalaugin Perlan Sólheimum 35, s. 38322 Harpa hf. Efnagerðin Valur Dalshrauni 1, s. 53866 Reykvísk endurtrygging s. 29011 Nýja Bílahöllin Funahöfða 1, s. 672777 Stefán Thorarensen hf. Síðumúla 32, s. 686044 Hagkaup hf. Osta- og smjörsalan hf. Gunnars majones sf. Suðurlandsbraut 6
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Valsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.