Valsblaðið - 01.05.1989, Blaðsíða 68

Valsblaðið - 01.05.1989, Blaðsíða 68
ár. Sumir segja að við séum bara eintómir frekjuhundar en ég er ekki sammála því!’ — Hvað þarf að bæta? „Búningamálin hafa t.d. yfirleitt verið í ólestri langt fram eftir vori. Við höfum þurft að kaupa upphitunarbúningana sjálfar, fé- lagið útvegar okkur þá ekki. Og svo mætti einhver stjórnarmaður vera í betri tengslum við okkur með því að mæta á fleiri leiki og annað í þeim dúr — það styrkir samband okkar við stjórnina. Annars höfum við feng- ið góða æfingatíma og er ekki undan neinu að kvarta í þeim efnum.” — Ertu sátt við þinn feril sem íþróttamaður? „Já, ég er það en samt getur maður alltaf gert betur. Effaust hef ég staðnað töluvert en samt hef ég róast á leikvelli. Ég er ekki æð- andi út um allt eins og áður. Kannski sýni ég jafnari leiki fyrir vikið. Þegar ég lít til baka hefði ég viljað æfa tæknina betur yfir vetrar- mánuðina og sömuleiðis viljað bæta við mig snerpu með hoppæfingum.” Eins og áður sagði er Ragnheiður íslands- meistari í squash en hún byrjaði að stunda íþróttina fyrir rúmum tveimur árum. „Ég fékk algjöra bakteríu en eins og margir byrj- aði ég fyrst í „raquet-ball”. Síðan skipti ég yf- ir í squash og þetta er íþrótt sem íslendingar ættu að stunda í miklu meira mæli. Eftir að ég kom heim frá Kýpur hef ég spilað minna en æft tæknina betur þess í stað. Þegar ég keppti úti sá ég hvar ég stóð gagnvart erlend- um keppendum og núna æfi ég því öðruvísi. Bikarmeistarar Vals 1988 eftir 1:0 sigur gegn ÍA. Öllu jöfnu æfi ég svona 4 sinnum í viku. Það er engin spurning að þetta er mín framtíðar- íþrótt. Það verður kannski dálítið erfitt að sameina fótbolta og squash næsta sumar en ég ætla að reyna. Ég reikna með að leggja frekari stund á tæknina í squash næsta sumar en púla minna því öll orkan fer í fótboltann. Það þarf alveg gífurlega einbeitingu til þess að ná árangri í squash og íþróttin gefur mér mjög mikið” — Hvaða viðurkenningu af þeim sem þér hafa hlotnast á ferlinum þykir þér vænst um? „Auðvitað er gaman að hafa unnið alla þessa titla með Val en það að vera valinn „Valsmaður ársins” er gífurleg viðurkenning og hún er meira fyrir mig persónulega. Auð- vitað er það líka mikil viðurkenning að vera valinn í landslið og að verða Islandsmeistari í squash.” Eins og fram hefur komið er Ragnheiður í sambúð með Antoni Jakobssyni leikmanni Fylkis. Hún var spurð hvort engin félagaríkur væri á milli þeirra. „Nei, alls ekki. Ég hef svo mikla yfirburða í titlum að hann lætur lítið á sér kræla í þeim efnum.” — Finnst þér gaman að vera Valsmaður? „Já og ég er ákaflega stolt af því. Sérstak- lega er gaman að monta sig við KR-stelpurnar því þær hafa aldrei unnið okkur og við höfum sálfræðilegt tak á þeim. Þeir segja það meira að segja sjálfar.” EFTIRTALDIR LEIK- MENN HAFA VERIÐ KJÖRNIR BESTU LEIKMENN MEIST- ARAFLOKKS KARLA í KNATTSPYRNU FRÁ ÁRINU 1976: 1976 Sigurður Dagsson 1977 Bergsveinn Alfonsson 1978 Sigurður Haraldsson 1979 Dýri Guðmundsson 1980 ? 1981 Sævar Jónsson 1982 Þorgrímur Þráinsson 1983 Ingi Björn Albertsson 1984 Bergþór Magnússon 1985 Guðmundur Þorbjörnsson 1986 Magni Blöndal Pétursson 1987 Guðni Bergsson 1988 Sævar Jónsson 1989 Þorgrímur Þráinsson LÖGHEIMTAN HF. INNHEIMTU- 0G UPPLÝSINGAÞJÓNUSTA LAUGAVEGI 97 SÍMI 27166 68
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Valsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.