Valsblaðið - 01.05.1989, Side 30
Jakob Sigurðsson
fyrirliði meistara-
flokks karla í hand-
bolta og marg-
reyndur lands-
liðsmaður
Eyjapeyjanum í Valsliðinu, fyrirliðanum
J akobi Sigurðssyni, er fleira til lista lagt en að
kasta bolta. Hann er margfaldur íslands-
meistari með Val í fótbolta, var í sýningar-
flokki í fimleikum þegar hann bjó í Vest-
mannaeyjum og á íslandsmeistaratitil að
baki með 2. flokki HK í blaki. Á aldrinum 14
til 15 ára var Jakob á kafi í hestmennsku en
því áhugamáli lauk snögglega þegar keyrt var
yfir hestinn hans. „Jú, auðvitað lagðist mað-
ur í kör eins og Egill forðum þegar hesturinn
drapst,” segir Jakob og brosir. „Annars er nú
dálítið skondið hvernig ég varð íslandsmeist-
ari í blaki. Nokkrum félaga minna tókst að
plata mig á blakæfingu með HK sem leiddi til
þess að ég var síðar boðaður í leik með liðinu.
Ég koma lítið inn á leiknum en fékk þó að
vera smávegis með. Þetti er minn eini blak-
leikur á ferlinum en þegar lið HK varð meist-
ari í lok vetrar fékk ég sendan verðlaunapen-
ing heim. Ég þurfti því ekki að hafa mikið
fyrir þeim Islandsmeistaratitli.”
Jakob Sigurðsson er fæddur í Vestmanna-
eyjum 28. mars 1964. Sambýliskona hans
heitir Fjóla Sigurðardóttir og er tölvunar-
fræðingur. Jakob er einkabarn hjónanna Sig-
urðar Tómassonar og Guðrúnar Jakobsdótt-
ur. „Nei, ég held að ég sé ekki spilltur því það
var reynt að ala mig upp í góðum siðum.”
Jakob lenti í því 23. janúar 1973, þá 9 ára
gamall, að flýja Vestmannaeyjar ásamt öðr-
um Eyjaskeggjum þegar jörðin tók að spúa
eldi og brennisteinum. Hann snéri til baka
þegar öllu var óhætt en þegar foreldrum hans
bauðst góð atvinna í Reykjavík lauk ánægju-
legu Eyjatímabili í lífi hans, í bili að minnsta
kosti. „Vestmannaeyjar er fullkominn staður
fyrir gutta að alast upp á. Manni var sleppt út
á morgnana og svo skilaði maður sér heim
þegar svengdin sagði til sín. Við vorum í fót-
bolta allan daginn eða að byggja kofa. í þá
daga gekk lífið út á fótbolta og í Eyjum var
fullt af hverfaliðum. Ég man að ég lék ýmist
með Smára eða Visi. Handboltinn í mínu lífi
kom ekki til sögunnar fyrr í 5. flokki hjá Val
en þá var ég orðinn 12 ára.”
— Af hverju varð Valur fyrir valinu eftir að
þú fluttir til Reykjavíkur?
30