Valsblaðið - 01.05.1989, Side 31
„ÞVÍ FYLGIR SÉR-
STÖK TILFINNING
AÐ VERA í VAL“
Islandsmeistarar 4. flokks í handbolta árið 1978. Krá vinstri: Engilbert Sigurðsson, Jakob Sigurðsson,
Vignir Pctursson, Geir Sveinsson, Sigurður Hafsteinsson og Birgir Öm Guðmundsson.
„Það má eiginlega segja að Grimur Sæ-
mundsen hafi staðið fyrir því. Áður en það
gerðist munaði minnstu að KR yrði fyrir val-
inu. Grímur bjó á hæðinni fyrir ofan afa á
Háteigsveginum og hann hafði þau áhrif á
mig að rauði liturinn komst í uppáhald. Og
því sé ég ekki eftir því Valur er alveg einstakur
klúbbur. Því fylgir einhver sérstök tilfinning
að vera í Val. Það er svo gífurleg sterk „trad-
ition” í Val sem skapar ákveðna samkennd
meðal félagsmanna.”
Eins og áður sagði stundaði Jakob ein-
göngu fótbolta á sínum yngri árum og byrj-
aði hann í 5. flokki í Val. „Ég byrjaði fljótt í
handbolta og sömuleiðis í körfubolta en
körfuboltinn sat á hakanum.”
Jakob varð íslandsmeistari með 4,- og 3.
flokki Vals og bikarmeistari með 2. flokki.
H ann hætti eftir sitt fyrsta ár í 2. flokki en þá
var handboltinn orðinn yfirgripsmeiri. En
ætli Jakob hafi verið góður fótboltamaður?
„Ég skal nú ekkert dæma um það en ég var
alltaf í liði — ýmist sem „senter” eða tengilið-
ur. Mér gekk ágætlega að skora og var tvíveg-
is valinn leikmaður ársins. Það var í 3,- og 4.
flokki.”
I handboltanum er ferillinn enn glæstari og
titlarnir mun fleiri. Jakob lék fyrir utan, ým-
ist sem leikstjórnandi eða skytta vinstra meg-
in alveg þar til Rússinn, Boris Akbaschev,
gerði róttækar breytingar á uppstillingu leik-
manna í 3. flokki. „Fram að þeim tíma höfð-
um við Geir Sveinsson skipst á að leika skyttu
eða vinstra megin fyrir utan og Júlíus Jónas-
son lék alltaf í vinstra horninu. Eftir aðeins
eina æfingu, setti Boris mig í hornið, Geir á
línuna og Júlíus í stöðu skyttu. Á þessum ár-
um var stærðarhlutfall okkar öðruvísi en það
er í dag en við vorum flestir ósáttir við þessar
breytingar til að byrja með. Auðvitað er mað-
ur það ekki í dag því þarna urðu straumhvörf
á ferli okkar allra. Upp frá þessu var t.d. mjög
gaman að sjá hversu miklum framförum Júlí-
us tók!’
Handboltaferill Jakobs er glæstur og er
ástæða þess sú að auk hans eru fjölmargir
jafnaldrar hans í Val feiknalega góðir hand-
boltamenn. Jakob varð íslandsmeistari á
eldra ári í 4. flokki, eldra ári í 3. flokki, tvisv-
ar sinnum í 2. flokki auk þess að verða bikar-
meistari. Þá sigraði flokkur hans á Partilla
Cup árið 1979 sem samsvaraði til Evrópu-
keppni félagsliða í þeim aldurshópi. Þótt
flestir leikmenn Vals væru yngri en aðrir á
mótinu náðu þeir þessum glæsilega árangri.
Með meistaraflokki hefur Jakob tvisvar
orðið íslandsmeistari, einu sinni bikarmeist-
ari auk þess sem Reykjavíkurmeistaratitillinn
hefur unnist í það minnsta þrisvar sinnum í
hans tíð. Ég spurði Jakob hvaða þjálfari hafi
kennt honum mest.
„Boris var án efa örlagavaldur margra
handboltamanna hjá Val í yngri flokkunum
og hann kenndi okkur margt sem lítur að
tækninni. Jón Karlsson og Þorbjörn Jensson
tóku við af honum og þeir voru sömuleiðis
góðir. Ég man líka eftir því að Albert Guð-
mundsson fótboltamaður (yngri) þjálfaði
okkur í 4. flokki og hann var alveg ágætur!’
Þegar Jakob lék með 3. flokki, lék hann
sömuleiðis með 2. flokki og æfði þar fyrir ut-
an með meistaraflokki. Boris, sem þjálfaði 3.
31