Valsblaðið - 01.05.1989, Side 38
4. flokkur Vals 1989. íslandsmeistari í A- og B-liði.
GULLFLOKKURINN
— Guðbjörg B.
Petersen formaður
unglingaráðs skrifar
um árangur yngri
fiokka kvenna og
karla og meistara-
flokk kvenna
Uppskera knattspyrnudeildar á síðastliðnu
keppnistímabili verður að teljast mjög góð.
Að meðaltali vannst einn titill á flokk. Af
góðum árangri nokkurra flokka er á engan
hallað þótt sagt sé að árangur 4. flokks hafi
verið stórkostlegur. Strákarnir í þeim flokki
unnu alla titla sem þeir kepptu um — aðeins
Islandsmeistaratitillinn innanhúss rann þeim
úr greipum. í mínum huga og annarra, sem
standa að 4. flokki, skiptist flokkurinn ekki
í A-, B- og C-lið heldur er um eina heild að
ræða. Góður árangur 4. flokks byggist ekki
eingöngu á því hversu góðir strákarnir eru í
fótbolta, heldur einnig á samspili foreldra og
þjálfara liðsins undanfarin ár. Foreldrarnir
hafa verið einstaklega virkir í að mæta á völl-
inn og hvatt strákana til dáða í öllum leikjum
þeirra. Iðulega mæta foreldrar til að hvetja
liðið í keppni þótt þeirra strákur sé ekki í lið-
inu í það skipti. Viðþetta eykst samheldni og
vinskapur innan hópsins og færri verða
útundan.
Okkur er því miður allt of gjarnt að hampa
þeim sem eru hvað leiknastir með knöttinn,
fljótastir að hlaupa og sitthvað í þessum dúr
vekur athygli okkar. Við gleymum því að
strákurinn eða stelpan, sem kemur í fyrsta
skipti á æfingu gerir það því áhuginn fyrir
knattspyrnu er til staðar og viðkomandi hef-
ur áhuga á að læra hana enn frekar. Mjög
íslandsmeistarar 2. flokks 1989.
mikilvægt er að hlúð sé að öllum einstakling-
um og að allir séu boðnir velkomnir sem nýjir
Valsarar — hvort sem viðkomandi er líklegur
Iandsliðsmaður fyrir félagið eða ekki. Við-
komandi á alltaf að vera velkominn sem fé-
lagi. Þetta hefur því miður skort hjá Val en
blaðinu verður nú snúið við til þess að efla fé-
lagsandann.
Núna verður meðal annars reynt að vinna
í að fá fleiri sanna Valsara til að þjálfa yngri
flokka félagsins. Einnig þarf að koma til öfl-
ugra samstarf við foreldrana, fá þá til starfa
í unglingaráðinu því með því móti kynnumst
við nýjum viðhorfum og nýjar hugmyndir
skjóta upp kollinum sem efla félagslega þátt-
inn. Einnig þarf að veita stjóm knattspyrnu-
deildar aðhald og það má aldrei gleymast að
félagið stendur öllum opið og allir verða
ávallt jafn velkomnir að Hlíðarenda. Að lok-
um vil ég þakka öllum þeim sem hafa lagt mér
lið varðandi unglingastarfið. Ekki síst þeim
fjölmörgu jákvæðu og skemmtilegu foreldr-
um og þjálfurum sem eru alltaf tilbúnir til
starfa hvenær sem til þeirra er leitað Ég
38