Afturelding - 01.04.1977, Blaðsíða 9

Afturelding - 01.04.1977, Blaðsíða 9
— Heldur þú, að það sé stöðugt mögu- leiki á endurnýjun fyrir Vesturlönd? — Eg veit ekki hvernig það er stjórn- niálalega, það efni verð ég að fella úr en vafalaust finnst vera andleg von. Eftir því sem ég hef lesið og einnig heyrt í þeim ^áu samtölum, sem ég hef átt við fólk, þá nefur það hreytt um skoðun gagnvart efnis- ^yggjunni. Það segir á þessa leið: „Efnis- hyggjan fullnægir ekki. Líf manna byggisl á einhverju öðru en að vera háð því, hvaða eignir það á. Eitthvað annað hlýtur að vera til í lífinu, eitlhvað sem við getum trúað á og leitt líf okkar.“ Ég held, að þetta sé iyrsta skrefið lil Guðs og fyrsta skrefið til vakningar. Eg veit ekki hvorl þetta er yfirleitt satt, þar sem Svíþjóð á í hlut. Til eru þeir, sem kafa sagt mér, að vart verði við nokkurs konar undiröldu, þá tilfinningu að eitt- hvað annað sé fyrir hendi. Eg segi ekki: Við skulum snúa við — heldur j ress í stað: Sækjum fram með Kristi. Hér er ekki um að ræða að snúa yið til miðalda eða laka upp gamla lifn- aðarhætti. Kristur er nýr að eilífu. Hann er á dagskrá hjá hverri kynslóð og aðferðir Verða að laga sig eftir breytlum aðstæðum en boðskapurinn breytist aldrei. Boðskap- arinn er öflugur, gæddur sama krafti og í upphafi lil að breyta lífi (förvandla liv). ■— Hinir fyrstu krislnu rnenn höfðu uijög næma trú. Hvar finnst slík trú í dag? -— A mörgum stöðum í Afríku, í Kóreu, á bilippseyjum og ég held einnig í Banda- ríkjunum, sérstaklega meðal ungs fólks, ekki sízt námsmanna. Þeir eru margir, sem snúa sér til Krists og vitnisburður þeirra er mjög næmur. I Bandaríkjunum hafa þróazt biblíunáms- og bænáhópar í J)ús- undatali; hluti j Deirra utansafnaða, aðrir í sambandi við söfnuðina. Fólk hungrar eftir Guðs orði. Það er nýtt fyrirbrigði í Banda- ríkjunum hvað varðar j)essa öld. Þessi breyling hefur orðið á seinustu 10 árum. Hin veraldlegu blöð hafa skrifað um þetta. Einnig hefur hinn nýi forseti Bandaríkj- anna sézt í sjónvarpi með Biblíuna í hend- inni á leið í sunnudagaskóla. Það er langl síðan eitthvað þessu líkt hefur gerzt í Bandaríkjunum. — Hvernig lítur j)ú á Jesú-hreyfinguna og liina andlegu vakningu meðal kaþólskra seinustu árin? Eru j)að hlutar af sömu mynd? — Mér finnst, að gert hafi verið of rnikið úr hinni svokölluðu Jesú-lireyfingu í blöðunum, með því að draga fram at- hyglisverð fyrirbrigði. Mér finnst, að Jesú- hreyfingin hafi verið lil um nokkurn tíma í kirkjunum eins og á götunni. Mér finnst, að dýpsta hreyfingin meðal hinna ungu, hafi verið innan kirkjunnar og í nokkrum af })eim söfnuðum, sem þið lásuð ekki um. Það átti við blöðin að taka myndir af hypp- um og fólki á götum í Hollywood. Hvað við kernur náðargáfu-hreyfingunni meðal kaþólsku kirkjunnar, hefur það, sem ég hef lesið af bókinni Ný hvítasunna eftir Suenen kardinála, hafl mjög mikil áhrf á mig. Ég er einmitt að ljúka við bók um Heilagan Anda, sem kemur úl í ársbyrjun 1977. Ég hef reynt það, að Jóhannes páfi 23. hafði á réttu að standa, þegar liann sagði fyrirfram, að í framtíðinni yrði lögð mikil áherzla á Heilagan Anda. Hann reyndist spámannlegur í því sambandi. Náðargáfu-hreyfingin í kaþólsku kirkjunni hefur gætl hana nýju lífi og aukið að mun tilfinningu íyrir samvinnu við mótmælend- ur, meir en nokkru sinni fyrr. Ulfljótur G. Jónsson jrýddi lauslega. 9

x

Afturelding

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Afturelding
https://timarit.is/publication/406

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.