Afturelding - 01.04.1977, Síða 11
son hérlendis og ferðaðist um landið. Enok
er ferskur prédikari og meinar af hjarta
|iað er hann segir. 22. mars kom til lands-
his Dennis Burnett frá Jamaica. Hann hef-
ir verið hér áður og kynnti sig vel. Nú hef-
ur vera hans verið röskar fjórar vikur og
auk jtess, að vera aðalræðumaður í Fíla-
delfíu um páska, ])á hefur hann ferðast mik-
ið um landið, lalað í kirkjum, samkomu-
húsum og í einu heimili, að Miðskála und-
ir Eyjafjöllum komu um 40 manns lil að
hlusta á hann.
Er það ekki tákn vakningar?
Sama dag og Burnett kom, bar hér á
fjörur Georg Kestlaff, prestur frá Koblenz
í Þýskalandi. Hann var á leið frá Ameríku
til heimalands síns og dvaldi hér í viku.
Hann er einn þeirra presta er skírst hefur
með Heilögum Anda og er rneð í hinni
karisamatísku vakningu. Agætt var að
hlusta á hann.
27. mars var merkisdagur í starfi Fíla-
delfíu. Þann dag var framhaldsaðalfundur
hins íslenska Biblíufélags í Hallgrímskirk-
ju. I því lilefni buðu forráðamenn Hall-
grímssafnaðar forstöðumanni Fíladelfíu,
söngstjóra og kór safnaðarins til Guðsþjón-
usluhalds í kirkjunni. Boðið var vilanlega
þegið með þökkum. Kirkjan var setin til
þrengsla og fór allt vel og blessunarlega
fram. Bræðraþel og bræðrahugur staðfest-
ist í slíkum boðum og heimsóknum og kenn-
ir okkur kristnum mönnuin að standa
saman og snúa bökum saman. Baráttan er
við sameiginlegan óvin, sem sigrast fyrir
trú og kærleika kristinna manna.
Ekki skal svo að öllu lokið við þessa
pistla, að geta skuli „Ambassadors“ krist-
inna íslendinga í Kaupmannahöfn, Olafs
Jóhannssonar. Þar slendur hann og leiðir
Royal bókaútgáfuna. Blaða- og bókaútgáfu
Hvítasunnumanna í Danmörku. Akaflega
margir íslendingar leita lil Ólafs, bæði
leikir og lærðir. Með framúrskarandi hæfi-
leikum og lipurð, ásamt staðgóðri þekk-
ingu, leysir hann vanda fjölda manna, er
til hans leita héðan að heiman.
Alllaf er hann kemur hér heirn, þá er
hann aufúsu gestur. Nú síðast um jól og
áramót, þá dvaldi liann hjá móður sinni
og sótti hverja samkomu í heimasöfnuði
sínum. Gerir hann og meira, en sækja sam-
komur. Olafur hefur alltaf eitthvað að
miðla, frá Orði Guðs og er hann í ræðu-
stóli eftirþráður prédikari, sein fer réll
með orð Sannleikans. Eftir að Oli var hér
heima í vetur, þá var hann einn af mörg-
um, er heimsótti samkomur Billy Grahams
í Gautaborg.
Nú við sumarmál, þegar þetta er ritað,
er horft fram með eftirvæntingu til sumar-
mótsins í Keflavík, 21. júní n. k. Heim-
sóknar kórsins frá Öckerö sem verður 12.
júlí og síðsumarmótsins í Kirkjulækjarkoti
um verzlunarmannahelgina. Þar að auki
verða tjaldsamkomur víða um landið. Ferð-
búinn í hlaði stendur nú nýr bíll með 14
sætum, sem notaður mun verða til útbreið-
slu starfsins í suinar. Annar nýr bíll er kom-
inn til þjónustu við Barnaheimilið í Korn-
múla, sem reiknað er með að komið geti í
góðar þarfir mikils og gagnmerks starfs.
Margt er á prjónum með starfið í Hlaðgerð-
arkoti. Fyrir utan daglega sýslu við stórt
heimili, þá er bygging sundlaugar þar efst
á dagskrá. Þetta er allt mikið þakkarefni
og fyrir okkur er stöndum í þessu, eru þetta
hrein undur náðarinnar, hvernig þetta get-
ur skeð og framkvæmst. Hér leggja margir
heilshugar og sameinuð hönd á plóginn og
þá skeður það í Jesú nafni. Margar yfir-
sjónir getur okkur hent, er stöndum í verki
Drottins. Stærsta og versla yfirsjónin er: að
gera ekki neitt. Ritstjórinn.
11