Afturelding - 01.04.1984, Blaðsíða 7

Afturelding - 01.04.1984, Blaðsíða 7
Ásmumlur Eiriksson við ritvélina. endaði. Það kom margt fólk á þessar samkomur og ábyggilegt að þarna unnust sálir fyrir Him- ininn. Á hverjum morgni fórum við upp fyrir byggðina og höfð- um bænastund. Svo skiptum við liði og fórum að selja. Við Hulda seldum saman, Guðný og Sigur- mundur seldu saman, Jóhann og Sigurður og svo var Ásmundur einn. Þetta var alveg yfirtaks skemmtilegt ferðalag. Ásmundur var ákaflega dug- legur að selja blöðin. Svona til að gefa hugmynd, þá vorum við hjónin einu sinni að selja á Siglu- f’irði. Hann seldi um níutíu blöð og fékk fjörutíu og sjö áskrifend- ur, en ég seldi fjögur blöð á sama tíma. Það má vera að tölurnar hafi hnikast til í tímans rás, en þetta er ekki fjarri því sem var. Frá Austfjörðum lá leið okkar um Hólsfjöll og í gömlu sveitina mína, Kelduhverfið. Við gistum hjá bróður mínum Þórami Jó- hannessyni og hans ágætu konu Guðnýju Þórarinsdóttur í Kross- dal. Þar áttum við mjög skemmtilega daga. Þórarinn lagði til hliðar öll verk nema heyþurrkunina og fékk allan hópinn í lið með sér. Sigur- mundur var alveg fyrirtaks dug- legur í heyvinnunni. Allt lék í lyndi og Þórarinn fékk afbragðs vel verkað hey í hlöður sínar. Við gistum einnig á Víkinga- vatni og var okkur vel tekið þar. Við höfðum eina samkomu í gömlu sóknarkirkjunni minni að Garði. Svo enduðunt við þessa veru í sveitinni minni með alls- herjar bænastund við túnfótinn á Víkingavatni. Árið 1937 fluttum við Ás- mundur svo til Vestmannaeyja ogbjuggum þartil 1945, að und- anskildum vetrinum 1941/42, sem við vorum í Reykjavík. Það var ákaflega gott að vera í Eyjum og Guð blessaði starfið, yndislegt að vera þar. Ericson var þá flutt- ur til Reykjavíkur, svo Ásmund- ur sendi greinar sínar til Aftur- eldingar í Reykjavík. Árið 1945 var Ásmundur búinn að vera veikur í sautján vikur þegar Ericson kom til Eyja og bað Ásmund svo ákaft að vera fyrir sig einn vetur í Reykjavík. Ericson ætlaði að fara í burtu. Ásmundur neitaði þessu, því hann sagði sent var að hann væri svo veikur fyrir brjóstinu. Hann gat ekki talað fullum rómi, bara hvíslað. En Ericson gaf sig ekki, hann sagði að ef Ásmundur fengi styrkleika málsins, meðan hann dvaldi í Eyjum, þá væri það vís- bending um að Ásmundur ætti að koma til Reykjavíkur. Ás- mundur gekkst inn á þetta. Svo frískast Ásmundur svona fljótt að eftir tíu daga var hann kom- inn á fætur og talaði yfir henni Þorbjörgu heitinni á Grundar- brekku. Bræðurnir í Betel sam- þykktu að hann færi, en fólkið var ekkert ánægt yfir að við fór- um frá Eyjum. Það var ákaflega gott samkomulag, allur söfnuð- urinn sem einn maður. Við fengum oft að reyna lækn- andi mátt Drottins. Eftir að við komunt til Reykjavíkur veiktist Ásmundur aftur. Á páskum var hann borinn í samkomusalinn með 40 stiga sótthita. Söfnuður- inn bað í heild sinni fyrir honum á grundvelli orðsins sem segir: „Hvaö sem þér bindiö á jörðu, mun bundið á himni, og hvaö sem þér leysið ájörðu, mun leyst á himni.“ Það þarf ekki að orð- lengja það frekar en Ásmundur gekk alheill og hitalaus út af samkomunni. Þegar Ericson var farinn sá Ásmundur alfarið um blaðið, Ericson dvaldist lengur erlendis en í fyrstu var ætlunin. Þegar hann svo kom aftur ætlaði Ás- mundur að fara til ísafjarðar, þvi honum fannst vera nógir sem vildu starfa í Reykjavík, en af því varð ekki. Við ílentumst í Reykjavík. Alltaf var nóg að gera. Það voru iystisemdir þegar við Ás- mundur settumst að prófarka- lestri. Það er ómögulegt að Iýsa því, en það eru einhverjar skemmtilegustu minningar, sem ég á. Oft lásum við prófarkir eftir kvöldsamkomur og sátum við fram á nætur, vorbjartar nætur. Það var svo gaman að vinna með Framhald á bls. 31

x

Afturelding

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Afturelding
https://timarit.is/publication/406

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.