Afturelding - 01.04.1984, Qupperneq 10
Frá ritstjóranum:
„Orð
þitt lætur mig
lífi halda
5 J
Hugleiðing á Biblíuári
Árið 1984 er nefnt Biblíuár. Til-
efnið er 400 ára afmæli Biblíu Guð-
brands Þorlákssonar frá Hólum í
Hjaltadal. Ennfremur 444 ára af-
mæli Nýja testamentis Odds Gott-
skálkssonar, sem prentað var í
Hróarskeldu í Danmörku árið 1540.
Þessir atburðir marka báðir tíma-
mót í sögu íslensku þjóðarinnar og
íslenskrar kristni.
Sögulega séð studdu þessar
útgáfur íslenskt mál, sem þá átti í
vök að verjast fyrir framandi þjóð og
embættisveldi hennar, sem talaði
yfirleitt ekki íslensku. Nútímamenn
ættu að skilja í hvílíkri þakkarskuld,
„ástkæra ilhýra málið“ stendur við
framtak fyrrgreindra manna.
Gagnvart kristninni, þá reyndi
fljótt á innihald og lærdóma Heil-
agra Ritninga. 43 árum eftir útkomu
Biblíu Guðbrands, komu erfiðustu
tímar yfir hluta þjóðarinnar og jafn-
framt þeir blóðugustu. Það var
Tyrkjaránið í júlímánuði 1627. Séra
Ólafur Egilsson frá Ofanleiti í Vest-
mannaeyjum greinir frá því í Tyrkja-
ránssögu sinni, hvílíka huggun Heil-
agar Ritningar veittu íslensku fólki í
djúpum hörmungum og vonleysi.
„Enda voru þeir vel fræddir í inni-
haldi Ritninganna.“ Davíð konung-
Einar J. Gíslason er
forstöðumaður Hvíta-
sunnusafnaðaríns í
Reykjavík or hefur
gegnt því starfi frá 1.
október 1970. Fram að
þeim tíma, frá 1948,
gegndi hann forstöðu-
mannsstarfi í Betel,
Vestmannaeyjum. Hann lauk námi frá Bibliu-
skóla i Sviþjóð og hefur mikið unnið að krísti-
legu starfi, innanlands sem utan.