Afturelding - 01.04.1984, Qupperneq 12

Afturelding - 01.04.1984, Qupperneq 12
Tákn, undur og kraftaverk eru sennilega mikilvœgasti þátturinn í hinum undraverða vexti kirkj- unnar í Kína í dag. Það frjálsrœði sem ríkt hefur í Kína um nokkurt skeið frá fráfalli Maós formanns, hefur komið kristnum mönnum til góöa. En nú er tekið að syrta í álinn á ný og frelsið er á undan- haldi og fjölmargir kristnir menn sœta nú ofsóknum þar í landi. Ferðatrúboði í Kína segirfrá: Gamli skósmiðurinn Gamli, hr. Ma, hafði ætíð kappnógan starfa með höndum. Hvert einasta sveitaþorp þarf á lagtækum manni að halda, við skósmíðar og skóviðgerðir og hr. Ma var einmitt slíkur, ómissandi maður. Frú Ma var einnig alltaf önnum kafin í einsherbergis-skó- vinnustofunni þeirra, sem í senn þjónaði sem móttökusalur við- skiptavina, matstofa, skóverk- stæði og skrifstofa að kvöldi við daglegt uppgjör. Að baki bambustjalds var smáskot, hæfi- lega stórt fyrir trérúm. Litrík rúmábreiða var hið eina sem lífgaði upp á þetta fábrotna heimili. Synirnir voru vaxnir úr grasi og fluttir til borgarinnar, en gömlu hjónin skorti ekki félags- skap. Heimili þeirra stóð alltaf opið ferðalöngum og nágrannarnir nutu þess að vera samvistum við Hallgrímur Guðmannsson er for- stöðumaður starfs Hvítasunnumanna á Selfossi. Hann hefur setið í ritnefnd Aftur- eldingar og Bama- blaðsins um árabil.

x

Afturelding

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Afturelding
https://timarit.is/publication/406

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.