Afturelding - 01.04.1984, Síða 15
Jesú var með lærisveinum sínum
sagði hann þeim að þeir skyldu
bíða í Jerúsalem eftir fyrirheiti
Föðurins.1 2 * 4 5 6 Það fyrirheit rættist
á hvítasunnudag.
Sú hátíð var einnig til á timum
Gamla Testamentisins. Var það
önnur stórhátíð ársins, þegar
frumgróði uppskerunnar var
færður Guði. Hátíðin var haldin
7 vikum eftir páska og nefnd
Viknahátíðin. Gyðingar minnst-
ust lögmálsins sem var gefið á
Sínaifjalli og var 19. kapítulinn í
annari Mósebók þá yfirleit les-
inn.
Lögmálið var mönnum gefið
af Guði til þess að maðurinn
skyldi hljóta leiðbeiningu. Nýja
Testamentið segir okkur frá því
að Heilagur Andi var gefinn á
hvítasunnudag.7 8 Þá voru marg-
ir samankomnir í Jerúsalem
vegna hátíðarinnar og heyrðu
þeir lærisveina Krists lofa Hann
á sinni eigin tungu eins og And-
inn gaf þeim að mæla. Eins og
lögmálið var gefið til að leið-
beina manninum þá er Andinn
einnig til þess gefinn, en Andinn
er líka gefinn til að hugga okkur,
styrkja og gefa kraft. Hinum
frumkristnu varð hvítasunnan sá
dagur sem Andanum var úthellt,
ef við notum það orðtak sem
Biþlían notar.s Spádómar sem
Gamla Testamentið talaði um
rættust.9 Þeir í frumkristninni
virtust svo halda þennan dag há-
tíðlegan áframhaldandi. Andan-
um var ekki úthellt aðeins í þetta
skipti, heldur veitist hann enn í
dag.
1. II Mós 12:1-14. III Mós 23:4-8. IV Mós
9:5. Jósúa 5:10.
2. II Mós 3:1-12,6:28-30,7:1-13.
3.IIMÓS 12:14.
4. Jóhannes 19:1—42.
5. Lúkas24:l —6.
6. Lúkas 24:49.
7. Postulasagan 2:1 —4.
8. 10:45.
9. Jóel 3:1—5.
Vitnisburður:
Jesús er
vegurinn,
sann-
leikurinn
og lífiö
Það má segja að það hafi verið
vegna sjúkleika sem ég leitaði
Drottins. Ég fór að lesa í Biblí-
unni og fann staðinn í Jesaja
53:5: „En hann (þ.e.Jesús) var
sœrður vegna vorra synda og
kraminn vegna vorra misgjörða.
Hegningin, sem vér höfðum til
unnið, kom niður á honum, og
fyrir hans benjar urðum vér heil-
brigðir. “
Nú setti ég nafn mitt inn í
versin: „Hann var sœrður vegna
synda Garðars (o.s.frv.) og þá
kom eitthvað dásamlegt og nýtt
inn í hjarta mitt og ég vissi og
trúði að ég var frelsaður og synd-
ir mínar fyrirgefnar. Því að allir
hafa syndgað og skortir Guðs
dýrð,“ segir Biblían og ég trúði
að ég ætti nafn mitt innritað í
Iífsins bók og lofaði Drottin af
öllu hjarta.
Ég gekk í Fíladelfíusöfnuðinn
á Akureyri og tók niðurdýfingar-
skírn samkvæmt orði Guðs. Á
Akureyri var ég í tuttugu ár en
flutti til Reykjavíkur 1965. Ég
var í nokkra mánuði í Biblíu-
skóla í Englandi en tilheyri nú
hvítasunnusöfnuðinum í
Reykjavík og er meðlimur í Fíla-
delfíukórnum.
Ég hef unun að fögrum söng.
Guð hefur skírt mig í heilögum
Anda og leyft mér að leggja út
tungur, það er í hæsta máta
Biblíulegt.
Trúarþroskinn hefur aukist
með árunum. Ég hef tekið þátt í
að styrkja trúþoð meðal heið-
inna þjóða og dreift út kristileg-
um ritum hérlendis og það hefur
blessað mig. Móðir mín er sann-
trúuð kona, nú 96 ára gömul.
Við vorurn 12 systkinin en ég
einn tók afgerandi afstöðu í
trúarsöfnuði Hvítasunnumanna.
Ég elska Jesúrn Krist. Nú hefi
ég í hartnær 30 ár gengið með
Drottni og sú ganga hefur veitt
mérblessun og lífsfyllingu og svo
eilíft líf hjá Jesú fyrir trúna á
hann. Líftryggðu þig hjá Jesú
meðan enn er tími, því fyrr en
varir getur stundaglas lífs þíns
runnið út.
í dag er hjálpræðisdagur. Því
vil ég segja: Taktu á móti Jesú
sem þínum persónulega frelsara.
Svarið við öllum mannlegum
erfiðleikum og leiðin til sannrar
lífshamingju er hjálpræðisvegur
míns elskaða frelsara Jesú Krists.
Endurkoma hans er fyrir dyrum.
Hann kemurskjótt.
Guð blessi þig
Garðar Loftsson