Afturelding - 01.04.1984, Qupperneq 21
Lcó í vagni sínuni: „Lg ábyrgist gæðin'
i duaranteevt
meira en auglýst verð fyrir vörur
sínar og aldrei baðst Leó ölmusu.
Hann hafði náð takniarki sínu,
sjálfstæður og frjáls.
Hann aumkaði ekki sjálfan sig
né vorkenndi. Þrátt fyrir að hann
væri fangi í eigin líkama, fann
hann leið til að yfirstíga það.
Þættir daglegs lífs, sem flestu
fólki finnast sjálfsagðir, eins og
að aka bíl, tala, vélrita og lesa,
voru i augum Leós stórfengleg
llafliði Kristinsson
licfur undanfarin þrjú
ár stundað nám við
Ccntral Bible College í
Springfield, Bandaríkj-
unum og er um þessar
numdir aö útskrifast
þaðan.
markmið, sem aðeins náðust með
þrotlausri elju og áreynslu.
En Leó náði takmarkinu. Þeg-
ar honum förlaðist sýn, sextíu og
sex ára gömlum, hafði hann lagt
að baki fimmtíuþúsund kíló-
metra akstur á dráttarvélinni.
Eftir að hann var orðinn blindur
og heyrnarlaus og kominn á elli-
heinrili, bjó Leó til leðurveski og
seldi.
Leó lét eftir sig arf, hugleið-
ingar sem hann vélritaði þjáðum
höndum: „Ég held að allir séu
einhvern tíma einmana og vor-
kenni sjálfum sér. En ég gefst
ekki upp. Einu sinni var ég veik-
burða og lasinn, en nú vinn ég
verk sem öllum fannst ómögulegt
að ég gæti unnið. Ég stunda
sjálfstæða atvinnu og nýt lífsins."
„Trúi ég á gæsku Guðs? Þið
vitið öll hvað Biblían segir: ’Vér
vitum að þeim sem Guð elska,
samverkar allt til góðs.’ Eftir
reynslu rninni að dæma, frá for-
tíðinni og til dagsins í dag, þá get
ég með sanni sagt að svo sannar-
lega geri ég það.“
Ekkert okkar hefði getað vitn-
að í þetta ritningarvers fyrir Leó
Beuerman og huggað hann í
þrengingum hans, því fáir hafa
gengið í gegnum svo miklar
þjáningar sem hann. Sú stað-
reynd að Leó gat staðfest gæsku
Guðs, þrátt fyrir allt, staðfestir
þann sannleika, að kraftur Guðs
fullkomnast í veikleika.
Hafliði Kristinsson