Afturelding - 01.12.1985, Page 14
SWW'
and'eS'’
,, Við munum gefa oss að bœn-
inni og hjónustu orðsins."
(Post. 6:4)
Þessi tilvitnuðu orð komu frá
postulum Jesú til safnaðarins í
Jerúsalem, þegar sú tillaga kom
fram, að útvelja vel kynnta
bræður, til að gegna þjónustu í
söfnuðinum. Hætta steðjaði að
postulunum, að þeir yrðu allt of
uppteknir við daglega sýslu.
Þarna var sameiginleg eigna-
sýsla, sem mikið þurfti að snúast
um. Frá upphafi tóku postularn-
ir þetta að sér, í viðbót við and-
lega þjónustu. Nú hafði starfið
vaxið svo, að skifting í starfinu
var nauðsynleg. Aðrir áttu nú að
taka við daglegri sýslan, en post-
ularnir áttu að gefa sig að and-
legri þjónustu orðsins. Þetta sýn-
ir okkur hvað var þýðingarmest í
þjónustu Guðsríkis. Augljóst er
að postularnir blönduðu sér í
fleira en þjónustu við orðið og
bænirnar. Þeir spáðu, báðu fyrir
sjúkum, það tilheyrði. Nauðsyn-
legast var að biðja og þjóna í
orðinu.
Sumir trúa því að vakningin
komi eins og stormur er fer yfir
og hverfur síðan. Saga vakning-
arinnar greinir ekki frá því. Það
tekur áratugi og aldir að byggja
upp vakningu.
Hvítasunriuhreyfingin hefur
það hlutverk, eins og fyrri vakn-
ingarhreyfingar, að endurnýja
lýð Drottins í fyllingu Andans
með öllum auðæfum hans. Það
skeður aðeins með því að skírn
með Heilögum anda og eldi gefi,
þeim er reyna, ljós Jesú og verk
hans. Þetta næst ekki á neinu
öðru sviði. Þetta hefir afgerandi
áhrif fyrir einstaklinginn. En
með þessu vill Guð sýna þeim,
sem fyrir utan standa, að lífið
með Jesú er yfirnáttúrulegt. Þeg-
ar maður sér andlausan kristin-
dóm, þá gæti maður hugsað sér
venjulega stofnun. Menn verða
að vita að kristindómurinn er
meira en slíkt. Það er bæði guð-
legt og himneskt í lífinu með
Jesú. Lýður Drottins þarf að
reyna þetta persónulega, svo
söfnuðurinn verði hlýr og veiti
andlegt skjól þeim, sem eru að
koma með.