Afturelding - 01.09.1986, Qupperneq 2
Aud Hole Ásmundsson
Sunnudaaur í Kenva
Eins oggreint hefur veriðfrá íAftureldingu eru hjónin Aud ogFrímann Asmundsson
nú við kristniboðsstörf í Kenya. Okkur barst bréf og greinar frá Aud, hi'tn bað fyrir
kveðjur til vina þeirra hjóna og allra lesenda blaðsins. Þeim, sem vilja styrkja starfþeirra
hjóna, er bent á Kristniboðssjóð Hvítasunnumanna, c/o Asgerður M. Þorsteinsdóttir,
IUugagata 33, 900 Vestmannaeyjar. ,i
Það er sunnudagur. Vekjara-
klukkan hringir ekki klukkan
sjö, en samt verðum við að kom-
ast á fætur. Við þurfum að fara
um langan veg á samkomu.
Snorri sonur okkar ætlar að vera
heima, en Bjartur og Ásgeir
koma með.
Söfnuðurinn, sem við ætlum
að heimsækja, samanstendur af
fólki úr Luo ættflokkinum og
nágranni okkar fer með sem
túlkur. Konan hans kemur einn-
ig með, hún er af Kikuyo ætt-
flokki. Fjölskyldurnar eiga erfitt
með að samþykkja mágsemdir
út fyrir raðir ættflokksins, en
þessi fengu leyfi að lokum.
Ferðalag
Við hossumst af stað frá
Thessalia kristniboðsstöðinni og
ökum milii víðáttumikilla syk-