Afturelding - 01.09.1986, Blaðsíða 10
friðflytjendur. Ólíkt öðrum
kristnum mönnum yfirgefa
kristniboðarnir heimabyggð
sína, stundum íjölskyldu og vini,
og halda til annarra, oft fjar-
lægra, staða í þeim tilgangi ein-
um að útbreiða boðskap hjálp-
ræðis, vonar og kærleika í hinu
nýja umhverfi.
En hvert fara kristniboðarnir
og hvað gera þeir á áfangastað?
Yfirbragð kristniboðsins hefur
breyst ákaflega mikið frá ný-
lendudögum nítjándu aldar,
þegar nefna mátti kristniboða og
heimsvaldastefnu í sömu and-
ránni. Kristniboðarnir eru ekki
lengur bundnir við heimsveldi
nýlenduríkjanna; í daga fara
kristniboðar um allan hinn
þekkta heim þar sem þörf er og
fjárhagslegar bjargir gera þeim
kleift að starfa. Andstætt við það
sem margir halda þá eru „dyrn-
ar“ ekki að lokast á kristniboð.
Fjöldi þeirra landa, sem lokað
hafa fyrir kristniboði, er lítill
samanborið við þau ríflega
hundrað lönd sem opin eru. Það
er jafn ijölbreytilegt sem kristni-
boðarnir gera í þessum löndum
og tilefni gefast til. Kristniboðar
gegna störfum safnaðarhirða,
kennara, trúboða, safnaðafrum-
kvöðla, lækna, hjúkrunarfólks,
tæknimanna, vélvirkja, tré-
smiða, flugmanna og fleira. Þeir
kunna að starfa í hringiðu stór-
borganna, í víðáttu dreifbýlisins
eða allt þar á milli. Þeir starfa
meðal menntaðra og ómennt-
aðra, ríkra og fátækra. Sumir
starfa eingöngu meðal vantrú-
aðra og aðrir meðal trúaðra. Þeir
kunna að starfa á svæðum sem
eru opin eða andsnúin við fagn-
aðarerindið. Kristniboðamir
fara þangað sem fólkið þarfnast
að heyra boðskap Jesú Krists.
Þá vaknar spurningin: Er það
þess virði? Er það virði tímans,
peninganna, persónulegu fórn-
anna? Er það virði þjáninganna,
sorganna, tilfinningaátakanna?
Er það virði háðsins, höfnunar-
innar og misnotkunarinnar? Er
það þess virði að búa við þæg-
indaskort, vöntun efnislegra
gæða og stundum missi heils-
unnar? Er það þess virði? Svarið
er ákveðið JÁ! Saga eins kristni-
boða er talandi fyrir munn
kristniboða um allan heim. C.T.
Studd var einn mesti krikket-
leikari Englendinga fyrr og síðar.
Hann var ekki einungis átrúnað-
argoð íþróttaunnenda, heldur
kom hann og úr auðugri fjöl-
skyldu. Dag einn tók Studd við
Jesú Kristi sem frelsara sínum og
skömmu síðar sneri hann baki
við frægðarferli sínum og frama
og fór til Kína sem kristniboði.
Daginn sem hann varð tuttugu
og fimm ára erfði hann háa fjár-
hæð, en það leið ekki á löngu
uns hann ákvað að gefa fjármun-
ina til útbreiðslu fagnaðarerind-
isins og treysta Guði gagnvart
eigin þörfum. Miklir peningar
voru sendir víða um heim.
Rausnarlegar gjafir voru gefnar
þar til allt var upp urið. Vinir
hans drógu þessar athafnir í efa
og minntu hann á að nú væri
hann ekkert annað en fátækling-
ur. Studd hló við og sagði: „Fá-
tæklingur? Hvernig get ég verið
fátækur? Himneskur faðir minn
á allan heiminn. Ég get skrifað
ávísanir á banka himinsins!“
Eftir nokkur ár neyddist hann til
að yfirgefa Kína vegna astma-
veiki. Hann náði heilsu í Eng-
landi, en þegar hann varð
áskynja um þarfirnar í Indlandi
fór hann til þess stóra lands og
starfaði þar uns astminn þving-
aði hann aftur til Englands.
Þessu sinni vöruðu læknar hans
við því að frekari kristniboðs-
störf yllu honum bráðum bana.
Dag einn sá Studd skilti fyrir
utan enska kirkju, sem á stóð:
„Mannætur þarfnast kristni-
boða“. Brátt var hann á leið til
Afríku. Það sem hann átti ólifað
dvaldi hann í Afríku við kristni-
boðsstörf þar til hann dó 1931.
Á ævi sinni hafði hann áhrif á
ótalinn fjölda vegna Jesú Krists
og til að ná til þeirra, sem hann
sjálfur náði ekki til, stofnaði
hann Worldwide Evangelization
Crusade-kristniboðssamtökin
áðuren hann dó.
C.T. Studd sá aldrei eftir
framabrautinni sem hann fórn-
aði. Þegar hann var spurður
hvernig hann hefði getað fært
slíkar fórnir svaraði hann:
„Fórnir? Ef Jesús er Guð og dó
fyrir mig, þá get ég ekki fært
neina fórn nógu stóra fyrir
hann.“ Þetta er andinn að baki
kristniboðs. Kristniboð er kleift
vegna fólks, sem í ljósi þess sem
Kristur hefur gert fyrir það, er
fúst til að fórna hverju sem þarf,
fara hvert sem þarf og gera allt
sem þarf til að hlýða fyrirskipun
Jesú!
Carolyn Kristjánsson.
Bókaskrá:
Kane, J. Herbert. The Making
of a Missionary. Grand Rapids:
BakerBook House, 1975.
Lewis, Norman. Go Ye
Means You. Chicago: Moody
Press, 1962.
Troutman, Charles. Every-
thing You Want To Know
About the Mission Field. Down-
ers Grove: Intervarsity Press,
1976.