Afturelding - 01.09.1986, Side 26

Afturelding - 01.09.1986, Side 26
Evrópumót að ári Íjúlí 1987 verður haldið Evrópumót hvítasunnumanna í Lissabon, Portúgal. Mótið verður dagana 21 .-26. júlí og hið sjöunda í röðinni. Fyrsta Evrópumótið var haldið þegar Lewi Pethrusbauð evrópskum hvítasunnumönnum til Nyhems-vikunnarárið 1969. Það er helsta mót sænskra hvítasunnumanna og sótt af um 15 000 þátttakendum. Næsta Evrópumót var haldið í Bern, 1972, svo 1975 í Hamar, Noregi. 1978 var mótið í Haag, Hollandi og 1981 í Helsingfors, Finnlandi. Síðasta Evrópumót var svo í Stuttgart, Þýskalandi 1984. Búið er að leggja drög að dagskrá mótsins í Lissabon. Þar gefst timi til samfélags, haldnir verða biblíulestrar, rætt um kristniboðsmál og farið í trúboðsferðir um Lissabon og nágrenni. Hvítasunnuhreyfingin í Portúgal er samsett af 500 sjálfstæðum söfnuðum. Forstöðumenn í fullu starl’i eru 140, þar að auki er íjöldi forstöðumanna, öldunga og djákna í hlutastarfi. Söfnuðirnir stunda kristniboð á Azoreyjum, Madeira, í Macao, Angola og Mozambique. Yfirskrift mótsins í Lissabon verður: Hvítasunna í dag. Vinirnir í Portúgal vænta þess að mótið verði til að efla skilning yfirvalda á frjálsu kristilegu starfi og að rýmka um starfsskilyrði hvítasunnumanna. Mótið verður haldið í FIL sýningarhöllinni. Hægt verður að kaupa máltíðir við vægu verði og hefur mótsstjórnin fengið ferðaskrifstofu til að annast útvegun gistipláss fyrir gesti. Opinber mál mótsins verða Mótsstaður: FIL ráðstefnuhöllin í Lissabon.

x

Afturelding

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Afturelding
https://timarit.is/publication/406

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.