Afturelding - 01.12.1986, Síða 13
Stórkostlegt
bænasvar
Séra Peter Lorenz Sellergren
fæddist í Jönköping í Svíþjóð, 9.
apríl 1768. Faðir hans var
vopnasmiður. Móðir lians dó
þegar hann var aðeins sjö ára
gamall, en nokkru síðar eignað-
ist Pétur stjúpmóður. Síðar á
æFinni ritaði hann bernsku-
minningar sínar og taldi hann þá
æskuár sín hafa verið hörð og
myrk. Stórkostlegar gáfur ein-
kenndu hann, og þrátt fyrir frá-
fall föðursíns fékk hann tækifæri
til þess að stunda nám við há-
skólann í Lundi. Flenrik Schar-
tau var þá prestur við Dómkirkj-
una þar. Eftir fimm ára háskóla-
nám tók Peter prestvígslu í
Vaxsjö. Þjónaði hann þar í hér-
aðinu næstu sjö árin.
Hann vakti hvarvetna mikla
athygli vegna mælsku sinnar og
visku. Algjörlega óundirbúinn
gat hann stigið í ræðustólinn og
haldið þrumuræður um hvaða
efni sem var. Hann hafði tök á
efninu og greiddi úr svörum og
spurningum.
Á þessum tímum fór ekki
alltaf saman líf og kenning boð-
andans. Aðalhætta þeirra var of-
notkun áfengis. Svo fór að Peter
var kærður fyrir biskupi, fyrir að
koma drukkinn til guðsþjón-
ustu. Send var skrifleg kæra og í
henni stóð m.a.: „Vesalings
presturinn, sem varla gelur
reiknað með nokkurri hjálp í
vesöld sinni.“
Drykkja Peters var svo alvar-
leg, að heilsa hans fór hríðversn-
andi. Hann naut ekki orðið
svefns, þjáðist af kvíða og fékk
ýmsar ofskynjanir. Samviska
hans íþyngdi honum, og einn
dag þegar hann var á göngu,
mætti hann sjálfum myrkrahöfð-
ingjanum. Þá skildi hann að nú
yrði breyting að eiga sér stað, ef
allt ætti ekki að enda í örvænt-
ingu og glötun.
„Mér fannst synd mín stærri
og alvarlegri en svo að ég gæti
öðlast fyrirgefningu. Ég fann til
sára í sál minni, en hinn rétta
lækni i ísrael hafði ég ekki fund-
ið. Styrkur minn var horfinn, ég
hafði tapað svefnró minni. Ég
var nærri örvinglaður. Ég get
sannarlega tekið undir með
Davíð og sagt að hönd Guðs hafi
á hverjum degi legið þungt á
mér.“
Sóknarbörn Peters, sem vissu
um líferni hans, fóru að koma
saman til bæna. Bænarefnið var
þetta: Sóknarpresturinn þarf að
frelsast. Eftir mikla bæn kom
bænasvarið á stórkostlegan hátt.
Kvöld eitt fór Peter að lesa í
bók Amdts, Sannur kristindóm-
ur. Þá tók að rofa til. Út frá því
hvarf öll hugsýki og löngun í
alkóhól. Það var algjörlega nýr
Peter sem stóð upp í Dómkirkj-
unni í Vaxjö föstudaginn langa
árið 1814. Hann hóf predikun
sína með orðunum: „Hvað hefir
þú gjört? Heyr, blóð bróður þíns
hrópar til mín afjörðinni!“ Efni
ræðunnar var: „Jesu blóði var
úthellt fyrir óforbetranlega synd-
ara.“ Áheyrendurnir fengu
ógleymanlegan boðskap um iðr-
un og afturhvarf.
Peter gerði opinberlega upp
sitt syndalíf og það svo að allur
söfnuðurinn grét með sóknar-
presti sínum og eignaðist sanna
iðrun og yfirbót.
Peter lifði í 30 ár eftir þetta.
Hann var talinn fremsti predik-
ari Svía, bæði fyrr og síðar.
Þýtt og endursagt úr Evangelii
Hárold.