Árbók (Kristilegt bókmenntafélag) - 01.01.1934, Side 28
Utíli-íittiir
úr löííura nr. 05, 07. júní 1001, um einkaleyfl handa
báslióla íslands til úttídfu almanaks.
1. gr.
Háskóli íslands skal hafa einkarótt til þess að gefa út og selja
eða afhenda með öðrum hætti almanök og dagatöl á íslandi.
5. gr.
Pað er brot á einkarétti háskólans samkvæmt 1. grM ef maður:
1. Flytur inn i landið til sölu eða afhendingar með öðrum hætti
önnur almanök eða dagatöl en þau, er i 1. gr. segir.
2. Selur hér i landi eða afhendir með öðru móti önnur almanök eða
dagatöl en þau, sem einkaréttur háskólans nær til.
3. Gefur út hér á landi á prenti eða með öðrum hætti almanök eða
dagatöl eða kafla úr þeim.
4. Prentar upp eða fjölritar aimanök háskólans eða dagatöl eða kafla
úr þeim til þess að selja eöa láta af hendi með öðrum hætti.
7. gr.
Fyrir brot samkvæmt 5. .gr. skal refsa meö sektum frá 100—2000
kr., ef það er framið af ásetningi eða gáleysi, enda liggi ekki þyngri
refsing við að öðrum lögum.
Sektir má taka fjárnámi.
Leggja skal þegar hald á rit þau, sem ólöglega hafa verið flutt
til landsins, gefln hér út eða seld eða af hendi látin samkvæmt 5. gr.,
og skal síðan gera þau upptæk með dómi.
Skaðabætur skal hver sá greiða, sem sekur verður eftir 5. gr.
Miða skal bætur, ef því verður við komið, við samanlagt söluverð
ólöglegra seldra eða afhentra eintaka að frádregnum hæfllegum sölu-
launum. Ella skal ákveða bætur eftir atvikum.
Hið íslenzka þjóðvinafélag hefir með samningi keypt einkaleyfl
þetta i ár (1935), og nær það til allra almanaka i bókarformi. Verð
hvers almanaks er samkvæmt samningnum sett á 30 aura. Peir, sem
kaupa 50 eintök eöa fleiri i senn, fá í afslátt 20 af hundraði.
Árið 1936 ber péskana upp á 12. april.
(24)