Árbók (Kristilegt bókmenntafélag) - 01.01.1934, Blaðsíða 131
Biblían á frímerUL
Þegar núverandi stjórnarfyrirkomulag á ftalíu var
10 nra, lét stjórnin prenta nokkur hátíðafrlmerki af
rnismunandi gerð. Eitt þeirra, 30 centisslma merkið,
vakti sérstaka eftirtekt, vegna táknmynda þeirra, sem
á því voru. Á miðju merkinu stendur kennara- eða
ræöuborð og á þvl liggur opin Biblla. Ofan við hana er
kross, en fyrir neðan er arnarmynd, tákn innblásturs-
ins, og þar neðanvið eru felldir fánar. Á hinni opnu
Bibllu stendur aðeins eitt orð: »Evangelium«, en neðan-
undir öllu saman er orðið: »Credere«.
Ymsar skýringar hafa verið gefnar á merki þessm
Það hefir vakið óánægju, andstöðu, háð og spott margra,
en það hefir llka vakið mikla gleði meðal margra, bæði
innan (talíu og utan.
Blað Valdensanna »La Luce« telur þetta bera Ijós
merki um trúarlega afstöðu stjórnarinnar og lýsir yfir
gleði sinni, að hún á þenna hátt staöfesti táknmyndir
fagnaðarboðskapar kristindómsins, hinn öbreytanlega
grundvöll kristinnar trúar. Stjórnin hefir og á annan
hátt sýnt að þetta er ekki augnabliks tilviljun, heldur
ákveðinn raunveruleiki. Því til sönnunar má nefna að
hún hefir sent öllum skólastjórum bréf, þar sem hún
leggur fyrir þá, að allir kennarar skuli lesa Nýja-
testamentið fyrir börnin og skýrn fyrir þeim guðdóm-
legt efni þess, og jafnframt skuli þeir sjá um að
börnin læri fegurstu versin utan bókar. »Ekkert skóla-
bókasafn má heldur vanta bókina. Hún er jafn ný á
öllum timum, vegna þess, að það er guðdómleg bók
og þess vegna er hún öllum öðrum bókum æðri
og moiri. Þjóðstjórnin vill leiða börnin, og með þeim
sál allrar ítölsku þjóðarinnar, aftur að þessari bók
og inn á þá braut, sem getur fært föðurlandinu sann-