Muninn - 15.03.1972, Blaðsíða 40
Blóm, heillaóskaskeyti og heimsóknir
- horft é hjúkkurnar, slefað - "Kærar
þakkir fyrir innlitið, blessaður ævinlega"
- andlitið grett í bros. - Slefað meira.
Ruggað sér á háum stól við gljá-
fægt borð, snörlar í kokinu - "Ka ekki
bjóða þér einn Sveinn, ég borga. - Eitt
orð frá þér við hr. bankastjóra Jón
nægir— 300 þúsund, skúrinn er næg
trygging - að vísu ekki nema ca. 50 þús-
unda virði en lánið verð ég að fá, -
það er ljómandi, Sveinn - Jú, hann Geir
rétt nefndi það að ég tæki sæti á list-
anum - nei.nei, ég geri það ekki, borga
bara í sjóðinn einsog vanalega og skipti
mér svo ekkert meira af þessu. - Vel
að merkja, ertu að fá þér hljómflutnings-
tæki — ef þú vilt, þá get ég útvegað
þau af Vellinum - hahaha sambönd þar
líka, jájá £hahahe....)
Kominn á efri aldur, líka setið í
mikilvægum sendinefndum - "....fjár-
hagsaðstoð Bandaríkjanna, - nei, nei og
aftur nei, því verður að fórna hiklaust
fyrir aðstöðuna - Augljóst mikilvægi
góðra samskipta íslands og Bandaríkjanna
- (góðsamskiptisamskiptiskipti) - skil-
yrðislaust meiri aðstoð J"
Og svo dó hann - minningargreinar,
virðuleg útför - svartklæddir og sorgum
mæddir vinir og venzlamenn - samtals
greinar uppá fimm og hálfa síðu í korgun-
blaðinu (mynd meðtalin) -
Þetta var úrdráttur úr sögunni af
duglega athafnamanninum sem kunni að
koma sér áfram................
friðrik h