Muninn - 01.04.1976, Side 22
góð að áliti þeirra sen vit
hafa á. Það voru gamlir
nemendur frá iu.L. sem gáfu
vélina.
Er ekki tónlistarklúbbur
starfandii
Jú, hann er innan Lista-
nefndar en sú nefnd nær
yfir fimm klúbba: Bókmennta-
klúbb, myndlistarklúbb,
leiklistarklúbb, ljósmynuar-
klúbb og svo tónlistarklúbb.
Hafið þið starfrækt útvarps-
stöð hér á staðnum?
Það var gert í fyrra og
hittifyrra og hún var kölluð
Búbbúlxna. Það voru nokkrir
strákar sem voru með hana,
peir sendu út lög og kveðjur
og þetta var afskaplega
vinsælt hjá peim sem hún
náði til. Svo hætti strák-
urinn sem átti tækin í
fyrra og þá datt þetta niður
og hefur ekki verið reynt
að endurnýja tækjakost síðan.
Hefur verið deyfð yfir
félagslífinu almennt?
Ja, það hefur verið hjakkað
í sama farinu og það
heyrir til undantekninga ef
við fáum eitthvað nýtt inn
í félagslífið í skólanum og
fólk er farið að fá leið á
þessu.
En er ekki reynt að finna
upp á einhverju nýju?
Jú það er alltaf reynt en
það vefst fyrir lbo nemend-
um að finna upp á einhverju
nýju, þetta er sama rullan
aftur og aftur.
Og finnst ykkur félagslífið
í skólanum of dauft?
Það er ágætt svo langt sem
það nær, en það vantar
nýbreytni. Það er ekki
hægt að seg.ja að sé lítið
félagslíf hér ],ví það eru
3 kvöld í viku sem fara
bara undir skemmtinefnd og
það er firmntudagskvöld,
undir bíó og laugardagskvöld
undir böli og svo er oft
bingó eða félagsvist á
sunnudagskvöldurn.
Og með það þökkum við for-
mönnum skemmtinefndar L.L.
fyrir spjallið.
SKG. GRV.