Muninn - 01.04.1976, Blaðsíða 36
FÁLMA
Þar sera sífellt er farið
fram á það við stjórn FÁLMA
að hún geri grein fyrir
starfsemi sinni í skóla-
blöðum liggur í augum uppi
að það verður alltaf sama
tuggan sem kemur þar fram.
Orsök þess er að starfsemi
félagsins fer þannig fram
að meðlimir vinna hver í
sínu lagi að sínum hug-
myndum. Segja má að ekkert
sé unnið í hópvinnu og
fundir eða samkomur félags-
manna tíðkast ekki utan
aðalfundar. Það er, sem
sagt ekkert að gerast í
félaginu, sem er frásagna-r-
vert.
Ljósmyndun er fyrst
og fremst einstaklings
'•hobby", þar sem skaparinn
festir hugmyndir eða tæki-
færisaugnablik á filmu, og
nýtur svo ánægjunnar sem
fylgir pví að vinna að
verkinu par til það er til-
búið efnislegt og áþreifan-
legt. Mjög æskilegt væri
að reyna að blómga starf-
semi félagsins á þann hátt
að auka samstarf meðlima
og skapa þannig meiri heild
innan félagsins. Það er
síður en svo að aðstaðan
hindri slíkt heldur er það
fámenni félagsins og þröngt
áhugasvið margra félags-
manna. Sú staðreynd að
‘ veturinn '74 - '75 sóttu
milli 4o og 5o manns kompuna
allan veturinn þar af \am
það bil 25 að staðaldri
bendir á hversu þröngur
hópur nýtir frábæra aðstöð-
una en hann gerir pað líka
vel. Síðastliðinn vetur
voru félagsmenn tæplega
loo og er fjöldinn svipaður
í vetur en áhuginn virðist
j. ó smá saman fara vaxandi
og fjölgar peim stöðugt
sem byrja á þessari "dellu".
Oft werður vart við furðulega
fordóma eða afsakanir þegar
rætt er við þá sem tæplega
vita hvað ljósmyndun er.
"Ég á bara instamatic" og
"þetta er svo dýrt" eru
algeng svör hjá hinum fá-
fróðu p.e., sem vita ekki,
hvað þeir eru að tala um.
"Kodak instamatic" ætti
ekki að vera nein hindrun
til að byrja og leiða merxn
í sannleikann um hvað
1jósmyndun er. Kostnaður
er aðallega fólginn í pappír
en félagið leggur meðlimum
allt annað til en hann og
34