Dýravinurinn - 01.01.1887, Blaðsíða 4

Dýravinurinn - 01.01.1887, Blaðsíða 4
fór faðir hans og afi að þvi. Hinn þriðji lætur það ekki fá, á sig, þó hesturinn haíi allra húsdýra viðkvæmasta tilfinningu, að leggja hnakkinn á bólginn hesthrygginn og sitja svo j)ar á ofan allan daginn, liann þarf að halda ferð sinni áfram, og hesturinn drepst ekki, þó hann verði frá brúkun um tíma. Hjer er ekki rúm til að orðlengja um, kvalir þær er skepnurnar liða við hordauða á vorin, og hættu þá sem allar landbúnaður er í, fyrir ráðlausan heyásetning á liaustin. Vaninn skapar villuljós, svo menn geta ekki sjeð hlutina og viðburðina svo, sem þeir þó í raun og veru eru. I útlöndum er nú á tímum, almennt farið betur með dýr en á íslandi. því veldur þrennt. 1) að löggjöfin er strangari gegn íllri meðferð á skepnum og harðara gengið eptir, af löggæzluvaldinu, að lögunum sje hlýtt, lieldur en ennþá á sjer stað á íslandi. 2) að Dýraverndarfjelög hafa víða myndast, sem án afláts brýna fyrir mömium, að þeir eigi að sýna dýrunum vægð og mannúð. 3) að almemiingsálitið liefir snúist á móti misþyrming dýra, ,það lítilsvirðir þann sem fer ílla með skepnur, og álitur þann búskussa og trassa, sem hefir horaðaí’ og illa útlítandi skepnur í þjónustu sinni, því hagsmunir hans liggjí í því, að eiga feitar og þriflegar skepnur; en skaðinn i þvi, þegar þær eru magrar. Allt þetta þrennt ætti sem fyrst, að verða innlent á íslandi; sjálfsagt verður hið síöasta þýngst á metunum, því þó mannúðin sje mikil, þá mun þó hagsvonin verða sterkasta hvötin. Börn og únglingar hafa vanalega gaman af myndum, er því þetta litla liefti af „Dýravininum11 hentugt fyrir foreldra. til þess að láta börn æfa sig á lestri, enjafnframt því að þau æfast í lestrinum, innrætist hjá þeim allmörgum velvild til dýranna. Ef mæðumar, um leið og börn þeirra lesa rit þetta, Ijetu sjer jafn annt um, að innræta þeim mannúd og rjettlætis tilfinningar gagnvart dýrunum, einsog sagt er frá i æfintýrinu, er hjer fer á eptir, að drottningin í Amrakuta hafi gjört, þá mundi fljótt vinnast, að breyta alþýðu álitinu. En þótt bókin sje meir f'yrir úngdóminn, er samtmargt íhenni, sem fulltiðamenn geta tekið til ihugunar. Vonandi er að ekki líði á löngu, jjartil menn í ýinsum hjeruðum landsins, taka sig saman um, að stofna dýravemdairfjelög. Einkum er konum bezt treystandi, til þess. Að sönnu hafa þær, til þessa tíina sjaldan tekið þátt í, að byrja fjelög, en að stofna þess konar fjelög væri þeim verðugt og eðli þeirra samkvæmt; margir af flokki karlmanna mundu verða fúsir til að rjetta þeim hjálparhönd. Herra Sigurifur IJjörleifsson, liefur samið og þýtt, sögur þær, sem eru í hepti þessu, að undanskyldum þeim tveim, sem eru um dýrin á Islandi. Kaupmannahöfn i Mai 1887. Tryggvi Ghmnarsson.

x

Dýravinurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dýravinurinn
https://timarit.is/publication/430

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.