Dýravinurinn - 01.01.1887, Blaðsíða 46

Dýravinurinn - 01.01.1887, Blaðsíða 46
46 Umhyggjusemi. yrir nokkrum árum síftan, bjuggjuhjón ein í Gothersgade í Kaupmanna- höfn. j>au áttu hund einn mjög vitran, og höfðu þau vanið hann á að bera heim brauð í körfu frá bakara einum í St. Kongensgade og leysti hann það starf vel af hendi. j>egar seppi átti að sækja brauð, var honum fengin karfan og peningarnir lagðir á botninn. Fór hann þá með hana rakleiðis til bakarans. Bakarinn tók við körfunni, tók úr henni pening- ana og ljet brauð í hana í staðinn. Svo tók seppi við körfunni og skilaði öllu heim. Gekk þetta lengi svo, og vantaði aldrei neitt í körfuna. En einn góðan veðurdag bar það við, þegar konan taldi brauðin upp úr körfunni, að þar var einu brauði færra en hún hafði átt von á. Hugði lmn þá að bakaranum hefði mistalizt í þetta sinn og hafði ekki orð á því. Daginn eptir sendir hún liundinn aptur af stað með körfuna og peningana, eins og vant var. Fór þá allt á sömu leið; eitt brauðið vantaði. Gjörir hún þá bakaranum boð um þetta, og biður hann að gæta þess, að hún fái brauðin með skilum. Bakarinn svarar því, að rjett hafi verið taliö, og þegar hundurinn kom næsta dag meö körfuna, lagði hann í hana einu brauði fleira enn honum bar, til þess að sjá hversu þá færi. Hundurinn kemur heim með körfuna og vantar þá það brauðið, sem um fram var. Næsta dag var hundinum veitt eptirför, til þess að sjá livað hann gjörði af einu brauðinu. Hundurínn bar körfu sína heim á leið, sem hann var vanur, en þegar hann kom að húsi einu í Adelgade, þá nemur hann þar staöar og fer svo með körfuna inn í húsið. Maðurinn, sem veitti honum eptirför, fór inn á eptir honum. Komst það þá upp, að seppi hafði átt vingott við tík þar í húsinu, og hafði liún gotið sama daginn sem konuha vantaði fyrsta brauðið. Hafði hundurinn fært tíkinni eitt brauð á hverjum degi eptir það. Nokkra daga á eptir ljet bakarinn einu brauði um fram í körfuna og færði seppi það tíkinni, meðan hún lá á hvolpunum; en þegar sá tími var liðinn, kom hann heim með öll brauðin, eius og hann hafði áður gjört og þá hætti bakarinn einnig gjöfunum.

x

Dýravinurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dýravinurinn
https://timarit.is/publication/430

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.