Dýravinurinn - 01.01.1887, Blaðsíða 22

Dýravinurinn - 01.01.1887, Blaðsíða 22
22 þolað með mjer bæði sætt og súrt, og liann er orðinn þreyttur og slitinn eins og jeg. Takið Jiíð vagninn og varninginn, en loíið þiö mjer að lifa og taka klárinn með mjer.“ „j>ú getur gjarnan fengið að lifa fyrir okkur, en liestinn þurfum við að brúka sjálfir“. Svo hlóðu þeir vopnum sínum og varningi á bakið á klárnum. „En hann er sterkur eins og úlfaldi“, sagði annar af ræningunum. Kondu nú klárinn minn, við þurfum að flýta okkur til tjaldanna11. En Juglu stóð grafkyrr í sömu sporum og horfði til vagnstjórans, sem haíði klappað honum. En þá lamdi ræninginn hann með svipunni á höfuðið og þá þorði hann ekki annað en hlýða. * * * Nú varð hesturinn að vinna baki brotnu, daginn út og daginn inn, því ræningjarnir voru sífeldlega á stjái, ýmist að ræna friðsama ferðamenn eða flytja burt varning þann, er þeir höfðu stolið. Enginn skeytti því þó hann liti á þá bænaraugum, og enginn ljet vel að honum. En það var um að gjöra að örmagnast ekki. þvi deyja vildi hann ekki og þrátt fyrir allar þær þrautir, sem liann tók út, þá lifði þó innst í sálu hans vonin um miskunsemi. En eitt kvöldið varð hann allt í einu aflvana, liann var nýkominn með þunga byrði upp að tjaldi ræningjaforingjans og þar hnje hann niður. Honum var ómögulegt að standa á fætur. Hann gat hvorki hreyft sig, eða gefið hljóð frá sjer. „Sláðu hann af“, sagði einn af ræningjunun. „Hann stendur hvort sem er ekki upp framar“. Maðurinn, sem þetta var sagt við, þreif í spjót sitt og ætlaði að reka það í hestinn. En innst inni i aumingja skepmmni var borin fram auðmjúk bæn um að miskuna konungssyninum, sem hafði orðið að þola svo harða hegningu, um að liann mætti aptur verða að manni, svo hann gæti orðið gciður bæði við mennina og skepnurnar. Svo hvarf meðvitundin og allt varð kyrt og hljótt. VI. Aptur í aldingarði álfkonunnar Aschandala. „Bæn þín er uppfyllt", sagði álfkonan. Hún hafði með mikilli um- hyggjusemi vakað yfir liki Almansors konungssonar, sem andar hennar höföu flutt til hennar þegar eptir fyrstu myndbreytinguna. „Bæn þín er uppfyllt og þú ert aptur orðinn Almansor konungssonur".

x

Dýravinurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dýravinurinn
https://timarit.is/publication/430

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.