Dýravinurinn - 01.01.1887, Blaðsíða 38

Dýravinurinn - 01.01.1887, Blaðsíða 38
38 liugmyncl um. Margir liaía víst tekið e})tir |iví, hve hörmulega sumir fuglar bera sig, þegar þeir eru hræddir um eggin eða líf unga sinna; hversu ærnar á vorin eru sorgbitnar, þegar verið er að stýja eða færa frá, og þær eru að kalla á lömbin sín; hversu óskildar kindur stundumverða góðir vinir á afrjettinni, „fylgifiskar“ ; þær fylgjast að í haganum og meiga ekki af annari sjá meðan þær eru sjálfráðar, en á haustin í rjettunum, þegar hver eigandi fer heim með sitt, þá verða þessir vinir að skilja með miklum jarmi og söknuði. Eða hversu ákafir hestarnir eru, þegar óyndi og strok er í þeim, og hversu tryggir hundarnir eru, þegar þeir heldur liggja í ofviðri hjá eiganda sínum dauðum, en að bjarga lífi sínu til mannabyggða. þegar menn haf'a um langan tíma nákvæmiega tekið eptir lífi og eðli dýranna, og sjeð live marga góða eiginlegleika þau hafa, getur valla hjá því farið, að menn fái velvild til þeirra, og aumki þau fyrir það sem þau verða saklaus að líða af mannavöldum, sumpart af ásetningi manna, en mest af hugsunarleysi og vana. þegar einhverjum manni leikur allt í lyndi, og ■ efnin eru nóg til að hjálpa kunningunum, þá vantar ekki vinina, sem smjaðra fyrir honum, og látast vilja allt fyrir hann gjöra. Enkomi óhapp fyrir, svo fátæktin verði orsök þess að liann sje kominn upp á hjálp þeirra þá fækka þeir fijótlega, heimsóknir hætta og það, sem á undan er gengið, gleymist. Svona er nú heimshátturinn, með fáum undantekningmn. En þeir sem ekki fara frá honum, og láta honum í tje sömu hjálp og tryggð eins og áður, það eru hesturinn og einkum hundurinn, ef hann aðeins sýnir þeim velvild og góða viðbúð, enda þótt hann naumast geti látið þá fá viðunanlegt viðurværi. „það er vinur sem í raun reynist.“ Dýrin sýna það opt. Mennirnir mættu þó ekki láta sjer farast ver en dýrunum, þeir ættu að minnsta kosti að láta jafn mikla umhyggju og velvild koma fram við dýrin, sem þau sýna þeim. Tr. G.

x

Dýravinurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dýravinurinn
https://timarit.is/publication/430

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.