Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.01.1938, Side 23

Heimilisblaðið - 01.01.1938, Side 23
HEIMILISBLAÐIÐ 21 frjáls og frí umi g'ötur og' stræti innan um allan mannstrauminn og gleðst yfir alli i fjölbreytni lífsins; en hún er altaf ný oa ný, hvert sem liltið er; stundum þar á móti stend ég- við gluggann og stari út og byggi lofthallir úr haustskýjum. Korpus. Júr s ber alla umhyggju ,fyrir stjórnarfarslegum nauðsynjum ríkisins, þ. e. a. s. hann les blöðin á hverjum degi og segir svo okkur Gamla aðalágripið af því helsta, semi við ber, oftastnær heldur hann svo á eftir fræðanidi fyrirlestur frá eigin brjósti og segir okkur, hvernig þetta eða hitt munj fara, innan langs tíma. Petta hvortfveggja er mjög nauðsynlegt fyrir okkur Gamla, því, að hvorugur okkar lítur nokkurntíma 1 blöðin; — ég hefi nú blátt áfram engan tíma tíl þess; því að mér er spurn: hvernig á ég að hafa tíma til þess, þegar ég á hverj- um degi þarf. að sinna fyrirlestrum og námstímum hingað og þangað, vera á stú- dentafélagsfundum og þar að auki vera staddur alstaðar þar sem eitthvað merki- Jegt er á seiði og loks, þegar óg þarf líka að -læra dálítið? Mér er spurn — hvernig get ég þá fengið tíma til að lesa blöðin? En það er nú bara fastur ásetnihgur hans Gamla, að lesa ekki blöðin, enda. lenda þeir Korpus Júris þráfaldlega í kappræður út af þessu. Korpus Júris eyðir nefnilega ein- um klukkutíma í blaðalestur á hverjum morgni; og þessi lestur hefir auðsjþanlega mjög hressandi áhrif á hann, því. að það er sama, hve önugur hann er, þegar hann fer á fætur, þá er hann orðinn eins og alt ann- ar maður — ljúfur og kátur — jægar hann hættir 'blaðalestrinum. En það er ein af uppáhaldssetningum Gamla, að blöðin séu ekki til annars en að sólunda tímanum fyrir mönnum. Hann segir, að fyr meir hafi inenn skrifað og lesið nytsamiar og stórar bækur, en nú gjörðu menn hvorugt — aðeins vegna þess, að menn þættist þurfa að lesa blöðin. Korpus Júris lofar blöðin á hvert reipi — eins og hvergi væri andlegan auð að hitta nema þar. Ég skal ekki dæma um það, hvor þeirra fer með réttara mál — en mér virðist Gamli líta nokkuð einhliða á það; og mismunurinn á fyr og nú virðist. mér aðallega vera í því fólginn, að þeir, sem nú lesa ekkert nema blöðin, lásu alls ekkert áður. Við þetta er ennfremur að athuga, að Korpus Júris er ákafur stjórnmálamaður, en Gamli þvert á móti. Gamli segir nef nilega, að alt sé und- ir því komið, að vera kristinn í raun og sannleika, og þegar svo langt sé komið hugsunarhættij og líferni miannanna, þá standi alveg á sama, hvort. bændavinirnir, eða embættismannaflokkurinn standi við stjórnvöl ríkisins, því að »ef sérhver skyldu innir ört, er alt í húsinu mjög vel gjört« —og sama máli sé að gegna, þegar um rík- ið sé að tala. En Gamli, er nú líka oft svo undarlegur í skoðunum sínum. En það var ofureðlilegt að þessi skoðanamunur yrði þráfaldlega kappræðuefni milli bræðra minna, Þessar kappræður fóru oftast fram yíir miðdegisverðinum. Ég hefi annars tek- ið eftir því, að menn eru langgjarnastir á kappræður, mteðan á dagverði stendur. Kvöld og morgna eru menn miklu blíðari og tilhliðrunarsamari; en yfir dagverði er ekki að nefna það, að þeir, sem hlut eiga að málii, hopi eina einustu hársbrejdd. Ég vil eftirláta mannfræðingum að útskýra. hvernig á þessu stendur, en það getur hver og einn rannsakað þettai sjálfur og gengið úr skugga um það, að ég segi satt. Að þess- um smáskærum frádregnum, bjuggum við saman í bróðurlegri einingu, eins og líka átti að vera. Stöku sinnum bar það við, þegar ég réði ekkert við kátínuna, sem. í mér bjó, að ég tók til að kyrja uppáhalds sönginn minn; en það er brot úr g'ömlum sjómannasöng, og hafði ég lært hann niðri hjá tollbúð: »Siglum hægt út á svið, siglum hægt út á svið. Björgynjar meyjar bráðla hittum viö. óhí, óhi! óhi — óhó!« En j>egar hér var komið sögunni, lyftir

x

Heimilisblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.