Heimilisblaðið - 01.08.1939, Síða 4
Veggurinn vinstra megin í Islendingashálanum.
Manhattan, er eins og að koma upp í hreint ljalllendi úr skítugum verksmiðju-
bæjum. —
Við innganginn að Lincoln göngunum nemum við staðar og spyrjum til veg-
ar. Vörðurinn greiðir vel úr því öllu og gefur okkur fult fang af prentuðum upp-
lýsingum um vegi til Heimssýniugarinnar, um hótel, og um ódýra gististaði. í byrj-
un Heimssýningarinnar fór inikið orð af því, hve alt væri dýrt þar og hve erfitt
mundi að fá húsnæði nema með afarkostum. Þetta var víst engin lýgi, en forráða-
menn sýningarinnar liafa fljótt séð að það mundi ekki auka aðsókn manna til sýn-
ingarinnar. Þetta mun liafa verið orsökin til þess að hinn vinsæli borgarstjóri í
New York F. La Guardia bófst handa og setti á laggir nefnd, sem átti að sjá urn
að útvega hvaða gesti sem hafa vildi liúsrúm við því verði sem hver og einn hefði
efni á. Var ekki annað en að síma til skrifstofu nefndarinnar, en bún ábyrgðist að
útvega plássið innan tíu mínútna.
Með þessar upjdýsingar ókurn við um Lincoln göngin yfir í Manhattan. Þar
staðnæmdust við eftir nokkrar krókaleiðir sem New York lögreglan gerði sitt til
að greiða úr, í einu gistihúsi, og ásettum við okkur að reyna þegnskap nefndarinn-
ar. Við hringjum og sjá, alt stendur eins og stafur á bók: eftir tíu mínútur er okk-
ur útvegað kyrlátt lierbergL út í Fluslxing, ekki mjög langt frá Heimssýningunni,
og okkur er sagt mjög nákvæmlega til vegar út þangað. Við höfum auðvitað enga