Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.11.1940, Side 10

Heimilisblaðið - 01.11.1940, Side 10
Í78 HEIMILISBLAÐIÐ samt, þrátt fyrir allar þessar »árásir«, — held ég«. »En hvað var það þá, sem reið bagga- mu,ninn?« spurði Hjörleifur. Kolbeinn svaraði ekki alveg strax. Hann leit upp ag horfði upp í ljósperuna í loffc- inu. Það brá fyrir einhverjum hlýjum glampa í stálgráum augunum og röddin var með óvenjulega hlýjum hreim, er hann sagði, hægt og hálf feimnislega: »Það var hún mcmirna gamla!«. »Já, hún er hjá þér, gamla konan. Er hún ekki orðin fjörgömul?« »ö-jú, — hún er orðin gömul, bráðum hálf-níræð, en hefir enzt vel. En nú er hún víst alveg að fara. Ég hefi eiginlega aldrei tekið eftir því fyrr en í gær, þegar við vorum að skrafa um þessa landlegu mína inni hjá henni, hvað hún er arðin átakanlega lítilfjörleg, blessuð gamla kon- an. Ekki var hún þó að leggja að mér með að vera heima, og þó veit ég, að engum af mínu fólki er eins órótt og henni, þegar ég er í Englandstúrunum, síðan styrjöldin hófst. Hún lagði lítið til málanna. En þeg- ar mér varð það ljóst, hvað hún er orðin mikið skar, og datt í hug, að líklega, yrðu þetta síðustu jólin hennar, tók ég mína ákvörðun. Sjálf býst hún ekki við að lifa önnur jól. Og ég held að ég hafi aldrei glatt hana jafnmikið á æfinni, eins og þeg- ar ég hvíslaði því að henni að ég ætlaði að verða heima um jólin! Og sannariega á hún það skilið að ég gleðji hana með því. Það er svo fátt, sem hægt er að gera gamla fólkinu til gleði. Og að þessu leyti er ég ánægður og allt í lagi«. »En hvað er það þá?« »Þá er allt grefils umstangið. Fyrst og fremst verður nú húsið á höfði, — eða að minnsta kosti á annari hliðinni næstu dag- ana, og maður getur hvergi verið, veit ekki hvar maður má sitja eða standa. Og svo byrjar búða-randið, einsog það er skemmti- legt, — ag nú verður ekkert eftir gefið hjá henni kellu minni, ef ég þekki hana rétt. Nóg af peningum! segir hún. Og það er satt. Þetta hefir verið gróðatími hjá okkur. En það er nú næst um því eins og að við séum ekki frjáleir að þessu, togara- karlarnir. Og það er nú ástæðan til þess, að ég kvíði fyrir búða-rápinu. Manni er gef- ið auga, — illt auga, jafnvel, og svo er verið að hvísla upphátt allt í kringum mann, þegar maður kemur einhversstaðar inn: Þarna er einn togaraskipstjórinn — hann hefir nú ekki þcrað annað en að fara með frúnni sjálfur í þetta sinn í búðirnar, til þess að hún eyddi ekki öllum stríðsgróð- anum. Og svo hlær fólkið, á bak við mann og flyssar. Ég er viss um, að ég óska mér þess oft, að vera kominn í brúna á »Öfeigi« — og það jafnvel á hættusvæðinu. Og svo kama jólin. Þá er ekki gert annað en að éta og drekka, þangað til maður er orð- inn fárveikur í maganum, — taka á móti gestum eða rápa, á milli húsa -----------«. Hjörleifur var hættur að taka eftir því, sem Kolbeinn var að segja. Nú var það hann, sem horfði upp í ljcsperuna í loft- inu. Á veðurbörðu andlitinu, sem annars var oftast með alvöru- og harðneskjusvip, brá nú fyrir viðkvæmnisbrosi og' í aug- unum var líka bros, -— hlýtt og bjart bros. Kolbeinn hætti sinni ræðu, og starði á Hjörleif undrandi. Honum kom hann svo undarlega fyrir sjónir. Þessi stóri, sterki og harðvítugi maður, — hann var ordinn þarna, allt í einu, eins og elskulegur dreng- hnokki. »Mikið held ég að þig dreymi vel, Hjör- leifur!« sagði Kolbeinn, þegar honum fannst tími til kominn að vekja Hjörleif, — því að það var sýnilegt, að hann var með hugann einhversstaðar langt í burtu. »Ha*-------já, víst var mig að dreyma«. Hjörleifur hafði hrokkið við og strauk nú hendinni um- enni sér. En hann strauk ekki af sér viðkvæmnis-brosið. »Og það var þér að kenna, — eða öllu heldur að þakka, að mig fór að dreyma. Vertu blessaður fyrir það, vinur!-------- Áðan, þegar þú fórst að stara þarna upp í ljósperuna, var eins og þú sæir þar eitt-

x

Heimilisblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.