Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.11.1940, Síða 19

Heimilisblaðið - 01.11.1940, Síða 19
r HEIMILISBLAÐIÐ 187 ræði en að selja þetta hljóðfæri, og þér eruð sá eini, sem, þekkir mig hérna. Ef yður þykir 20 gyllini of mikið, þá látið mig þó að minnsta kosti fá fimmtán gyllini fyrir hana''. »Hvað segið þér, — tuttugu gyllini?« æpti hinn fýkni Gyðingur. »Hver hefir verið að blaðra, um tuttugu? Nefnduð þér ekki fimmtán sjálfur núna rétt í þessu? En ég skal segja yður, að mér kemur ekki til hugar að láta fimmtán gyllini fyrir spítunæfrið að tarna, sem er svo sem tveggja skildinga virði«. »Þér eruð harðbrjósta og miskunnar- laus maður«„ sagði Neumark sárgramur. »Þér hafio ánægju af óhamingju og bág- indum annara. En Guð minn og hjálpari er einnig dómari. Ö, að hann gæti leyst samvizku yðar úr ánauðarviðjunum áður en það er um seinan!« Með þessum oröum i tók hann fiðlu sína, og gekk til dyranna. »Nú, nú, ungi maður!« kallaði Nathan á eftir honum. »Verzlun er verzlun og eng- inn kýs að skaða sjálfan sig. Ég skal láta yður fá tíu gyllini fyrir hana«. »Eg verð að fá fimmtán gyllini«, svar- aði Neumark og sneri við. »Ég á að borga tíu gyllini á morgun og hvað á ég svo að hafa mér til viðurværis þá daga og ef til vill vikur, sem líða, þangað til að hjálpin kemur? Hafið þó meðaumkun með mer«. »Eg hefi heitið að láta ekki fimmtán gyll- ini fyrir h,ana«, svaraði Gyðingurinn, »og stendur ekki í bók yðar að maður eigi að halda heit sín? Ég skal nú samt láta yður fá tólf gyllini fyrir hana sökum fornrar vináttu, — en það er að segja í átta daga, þó með einskildings vöxtum á hverju gyll- ini. Ef að þér svo leysið ekki hljóðfærið út eftir átta daga, verðið þér að gjalda tvo skildinga fyrir hvert gyllini, og ef þér leysið það ekki út eftir fjórtán daga, þá er það mín eign. Auðvitað stórskaðast ég á því, en hvað gerir maður ekki stundum af einskærum mannkærleika!« »Þung eru. þessi skilyrði«, mælti Neu- mark, »en samt sem. áður skal ég ganga að þeim, ef að þér látið mig fá fimmtán gyllini«. »Ég læt ekki einn skilding umfram tólf gyllini«, svaraði Nathan, »gerið svo eins og yður sýnist«. Neumark stóð stundarkorn þöguil og hreyfingarlaus. Loks mælti hann eftir harða innri baráttu: »Af því að ég er viss um að hjálpin kemur brátt, læt ég yður fá íiðluna hér með fyrir tólf gyllini«. Veðmangarinn tók þá aftur við fiðlunni og skoðaði hana vandlega. cg mælti um, leiö: »Ég er smeykur um að ég hafi veriö of fljótur á mér núna, því að hér er ein skrúfa á henni ekki alveg heil. Sagði ég annars tólf gyllini?« »Tólf gyllini sögðuð þér«„ sagði Neumark. »Nú, jæja, tól.f gyllini«, sagði Gyðingur- inn enn, »og tveir skildingar í vexti fyrir hvert gyllini fyrstu átta dagana, dg svo> þrír skildingar næstu átta daga. Voru kaupin ekki þannig gerð?« »Nei«„ svaraði Neumark. »Átta dagana fyrstu einskildings vextir og s,vo fram.v.«. »Voru kaupin þannig?« Gyðingurinn hristi höfuðið. »Peningarnir eru dýrmæt vara. Jæja, látum þá svo vera! Ég dreg vextina frá nú þegar, svo að þér þurfið ekki að ómaka yður með þá seinna. Ég verð að gera. það vegna gcðrar samvizku minnar!« Neumark hafði þegar tekið fiðlu sína enn á ný, stillt hana og settist á járnbenda kistu, er þar var cg framleiddi nokkra hreina, angurblíða en lága tóna, svo að gamli Gyðingurinn gat ekki varist því að leggja eyrun við með eftirtekt. Söng Neu- mark þá eftirfarandi söng, er hann orkti jafnframt og sem kom frá djúpi hjarta hans: Böl er mér að búa í Kedars tjöldum, blíði Drottin, tak mig heim til þín. Ég má kenna. margra meina, marga neyð og hættu reyna, ásján þina, helga, hreina, herra góði, skjótt inér sýnl

x

Heimilisblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.