Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.01.1941, Side 9

Heimilisblaðið - 01.01.1941, Side 9
HEIMILISBLAÐIÐ 9 »Svo bar við, að leiðtogi K. F. U. M. á Islandi var fyrirvaralaust beðinn að pré- dika á gamlárskvöld. Ekki man ég það nú, hvort svo var„ að sá, sem átti að pré- dika, hafði orðið veikur, eða prédika átti fyrir sjómenn af nýkomnu skipi. En hvað sem um það er, þá hafði leiðtoginn ekkert hugboð um það haft, að hann ætti að pré- dika, fyr en hann var kvaddur upp í ræðu- stólinn., Hann vis&i ekkert hvað hann átti að tala um. Hann hafði verið að vinna und- alnfarna nótt og var dauðþreyttur. Þegar hann kom, var stofan troðfull af fólki, hitinn afskaplegur og loftið þungt og mollulegt. Honum fanst hann vera svo ákaflega andlaus og aumlega fyrirkallað- ur. Hugsunin stóð föst. Hann tók til máls, en það var eins og að hvert orð kafnaði á vörum hans. Þá birtist honum alt í einu sýn: I s,tað- litlu stofunnar með syfjaða söfnuðinum, 3ér hann fagra og vistlega sali, þar sem fjöldi ungra manna fellur á kné og biðst fyrir. Hann verður eins og frá sér num- inn og gætir betur að. Virðist honum þá sem hann þekki bæði salina og andlitin. Og skyndilega rankar hann við sér: Þetta eru; híbýli K. F. U. M. í Vendersgötu í Kaupmannahöfn, sem hann sér þarna, og ýmsir vinir hans í því félagi. Sýnin hvarf. Aftur var hann í litla sam- komusalnum. En slíka endurnæring hafði hin kynlega sýn fært honum, að nú rann ræðan heit og hindrunarlaus frá hjart- anu. Söfnuourinn glaðvaknaoi og hlustaði á hann með athygli cg hrifningu, og allir hlutu ríkulega blessun. Á heimleiðinni var hann að hugsa um þetta. Hann m.intist þess þá, að þegar klukkan er hálf-tíu í Reykjavík, er hún hálf-tólf í Kaupmannahöfn, og á þeim tíma var þar ætíð bænasamkoma á síðasta kvöldi ársins. Eg tók sjálfur þátt í bænahaldinu þetta kvöld. Og ég man það enn, að á meðan á samkomunni stóð, reis einn hinna ungu manna úr sæti sínu og bað hispursiausia og Trúarbragðahöfundurinn. Undir lok 18. aldar hugkvæmdist ein- um hinna frakknesku, vantrúuðu. vísinda- manna að stofna ný trúarbrögð í stað krist- indómsins. En nú koimst hann að raun um, að sárfáir vildu hneigjast að trúarbrögð- unum hans. Yfir þessu fylgisleysi kvart- aði hann við Talleyrand, atkvæðamikinn frakkneskan stjórnmálamann, og bað hann ráða sér heilræði. Talleyrand svaraði: »Það er nú ekkert smáræði að ráðast í að stofna ný trúarbrögð; en samt get ég vísað yður á leið til þess, að yður megi takast það«. »Og hvaða leið er það svo?« spurði spek- ingurinn. »Leiðin að því er í fám orðum þetta«, svaraði Talleyrand. »Þér verðið að taka yður til og gera kraftaverk. Þér verðið að lækna hvers konar sjúkleika og vekja upp dauða; að því búnu verðið þér að láta krcssfesta yður og greftra yður og rísa svo upp aftur á þriðja degi. Þegar þér er- uð búinn að koma öllu þessu í kring, þá megið þér fara að búast við, að þeim fjölgi, sem hneigjast vilji að trúarbrögðum yðar«. Spekingurinn hefir víst gefist upp við að fara að þessu ráði, því að aldrei hefir neitt spurzt til trúarbragðanna hans síðan. B. J. þýddi. innilega bæn fyrir vini okkar norður á Islandi. Hann beitti bænartækinu í Kaup- mannahöfn og straumur blessunarinnar náði til Reykjavíkur. Lögmál bænarinnar- hafði verkað í 600 mílna fjarlægð, frá suðri til norðurs«. Mig hefði langað til, að taka hér upp fleira af því, sem Ricard segir um mátt bænarinnar. En ekki er rúm til þess, að þess,u sinni. En það er vert að hafa það í huga, að máttur bænarinnar er miklu meiri, en menn gera sér yfirleitt í hugarlund. Th. Á.

x

Heimilisblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.