Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.01.1941, Side 21

Heimilisblaðið - 01.01.1941, Side 21
HEIMILISBLAÐIÐ 21 djúpið og' síðan h,ér um bil hundrað skref eftir ljónshalanum; er hann flatur efst og s.vo breiður, að hægt er að hlaupa niður eftir honum, ef þess er gætt að fylgja skorunum. Þetta er nú allt cg sumt. En, auðvitað, sé Orme smeykur, sem ég hélt, að ekki væri, þar sem ég hefi heyrt svo mikið látið af hugprýði þess manns« — og þorparinn yppti öxlum Oig lauk máli sínu. »Smeykur, já«, svaraði Oliver, »ég skammast mín ekki fyrir að vera smeyk- Ur við að fara slíka för! En sé það nauð- synlegt, þá geri ég það samt sem áður; en samt geri ég það ekki fyrr en ég sé vin rninn,, einn sínsi liös þarna yfir á klett- iuum. Allt þetta getur verið umsaminn ieikur til þess að koma mér í hendur Fung- anna, því að ég veit, að þú átt þér vini með- :&1 þeirra«. !»Þetta er óvit, farðu ekki«, sagði Maqu- eda, »þú kollsteypist og merst í ótal agnir. Eg segi: Farðu hvergi«. »Og hví þá ekki, frænka«, tók Jcsúa fram í. »Shadrach hefir rétt fyrir sér; vio höfum nú heyrt svo margt um hugrekki Hessa heiðingja. Nú skulum við sannprófa það«. Þá vatt hún sér að prinsinum, eins og Wgrisdýr væri, og mælti: »Gott og vel, frændi, en þá skalt þú fara Uteð honum. Sá, sem hið göfuga blóð Abatí- anna rennur í eeðum, mun vissulega ekki ^opa á hæl fyrir því, sem heiðingi hefir hug til að gera«. En er Jósúa heyrði þetta, dró fljótt niðri 1 honum og ég man óglöggt, hvað hann sagði meira eða gerði, meðan á þessu spenn- andi augnabliki stóð. — Nú varð þögn á eftir og meðan á henni stóð, settist Oliver niður og fór að fara ur stígvélunum. »Hvers vegna ertu að þessu, vinur ^nn?* spurði Maqueda titrandi. _»Af því, að eigi ég að fara þessa leiðina, j-’á þykir mér öruggara að vera á sokka- eistu,num. Verið óhrædd«, sagði hann síð- an ástúðlega, »ég er vanur slíku frá drengja-árunum. En ég játa, að þetta skar- ar langt fram úr öllu, sem ég hefi til þessa fengizt við«. »Ég er hrædd samt«, svaraði hún. Samtímis hafði Kvik sezt niður og fór líka að fara úr stígvélunum. »Hvað eruð þér að gera, liðsforingi?« varð mér þá að orði. »Ég er, doktor, að búa mig undir að fylgja höfuðsmanni minum til »Týndrar Vonar höfða««. »Farið yður hægt, þér eruð allt of gam- all til að taka þátt í slíkum leik, liðsfor- ingi, Ef nokkur ætti að vera. með ihonum, þá ætti það að vera ég, sera á son minn þarna í Funga-landi. En það gagnar ekki, að ég freisti þess. Ég er ekki nógu styrk- ur yfir höfði og myndi því skjótt sundla og hrapa og þá myndu allir hinir missa móðinn«. »Já, auðvitað«, sagði Oliver, sem hafði heyrt á samtal þeirra. »Ég er hér yfir- bjóðandi og ég býð, að enginn ykkar fylgi mér. Mundu það, Kvik, að ef nokkuð skyldi henda mig, þá er það þitt hJutverk, að taka forða minn til varðveizlu, og verja honum samkvæmt því, sem yður hefir kennt verið. Farið nú og lítið eftir undirbúningnum og' semjið áætlun yfir bardagaaðferðina. Ég' þarf að fá dálitla hvíld og ró. Allt er þetta að líkindum tómt hégómamál. Við fáum auðvitað ekki að sjá neinn prófessor. En við skulum nú samt vera viðbúnir«. Við Kvik fórum nú að líta eftir því, að tveir léttir stigar væru bundnir saman. Ég spurði, hverjir ættu að vera með auk þeirra Shadrachs og Orme, en var sagt, að enginn tæki þátt í því, af því að þeir væru hræddir. Lcks kom einn af fjall- göngumönnunum, er Jafet hét og bauðst til að vera með, af því að niðji konunganna hefði sjálf heitið honum stórri jörð að laun- um. og ef hann biði bana, þá skyldi jörðin fálla til erfingjanna. Loks var allt tilbúið og nú varð aftur þreytandi þögn og kyrrð. Allar taugar voru svo spenntar, að enginn gat komið upp orði.

x

Heimilisblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.