Heimilisblaðið - 01.05.1956, Qupperneq 17
erfitt með að skilja, að þessi mildu áhrif betels-
ltls skuli geta vakið þessa óstjórnlegu ílöngun
Ueytendanna. Að vísu er um eitrunaráhrif að
r®ða, en þau eru með allt öðrum hætti en áhrif
atlnarra nautnalyf ja. Vilji menn kynna sér þetta
111 af nánar, verða þeir að byrja á því að rann-
Saka sögu og útbreiðslu betelsýkinnar. Við vit-
Urn> að ekki er unnt að skilja til hlítar eðli og
astand fjarlægra þjóða og menningarsamfélaga
" sérstaklega þeirra, sem eru dreifðar um svo
Seysistórt landssvæði — ef við ekki þekkjum
^ina sérstöku siði þeirra og tilhneigingar,
astríður þeirra og ílanganir. Því má halda fram
miklum rétti, að eitur og mannsandi, eitur
°§ nianndómur, eitur og ástand mannlegs þjóð-
félags standi í nánu sambandi hvort við annað.
0ft er allt menningarástand þjóðfélagsins undir
^Vl sambandi komið.
Frá Kyrrahafi til Austur-Afríku.
f^fenn ættu að reyna að gera sér í hugarlund,
Vað gerast mundi, ef eitthvert mikilvægt
llautnalyf til dæmis tóbak hyrfi skyndilega úr
nffum heiminum einhverja nóttina. Ef slíkt eit-
Urlyf hyrfi fyrirvaralaust, yrði eitthvert annað
skilyrðisiaust tekið í notkun í staðinn, og ef um
lnbak væri að ræða, yrði ef til vill eitthvað
angtum skaðvænlegra fyrir valinu. Enginn
^^ttnlegur máttur gæti komið í veg fyrir, að
^enn yrðu
sér úti um einhverja uppbót fyrir
a®- Ef betel hyrfi allt í einu úr sögunni í Indó-
Uesiu, Austur-Afríku, Indlandseyjum, Kína og
Vrt'ahafseyjunum, væri ekkert fyrir hendi,
Sern komið gæti í þess stað, og þá mundi þjóð-
Urn °g menningarsamfélögum vera voðinn vís
°S þau mundu hrynja til grunna. Svo geysi-
^ikla þýðingU hefur betel fyrir neytendur sína,
°S það skyldu menn gera sér fyllilega ljóst.
Neyzla til forna.
■^förgum öldum áður en tímatal okkar hefst
6r arekapálmans og hneta hans getið á sanskrít
Undir nafninu ,,guvaka“, og á pali-tungumáli er
eittnig getið
um betelblöðin. I kínverskum rit-
Urn frá árinu 150 fyrir tímatal okkar er einnig
®etið Um arekahnetur. Persneskur söguritari
^stur um það árið 600 e.Kr., að í höfuðborginni,
anyakubja, hafi verið þrjátíu þúsund betel-
búðir. Hinir miklu ferðalangar miðaldanna,
Marco Polo, Masudi og Ibn Battuta, segja ná-
kvæmlega frá betelneyzlu í Indlandi, Kína,
Persíu og öllum löndum Múhameðstrúarmanna
og nefna einnig ræktun betelpiparjurtarinnar,
vöxt arekapálmans og kalkblöndun beteltugg-
unnar.
Betelneyzlan breiddist út um Asíu, til Mada-
gaskar og alla leið til Afríkustranda og þaðan
til Kyrrahafseyjanna og Fijieyjanna. Það hefur
verið reiknað út, að betelneyzlan nái yfir
hundrað lengdar og tuttugu breiddargráður og
landflæmi það, sem hún nær yfir, nemi átta
milljón ferkílómetrum.
Arekapálminn (areca catechu) er upprunn-
inn á Malakkaskaganum og í Kotsjin-Kína, en
hefur síðar einnig verið ræktaður í Suður-Asíu
og Austur-Afríku, og hann getur orðið allt að
24 metrar að hæð. Ávextir hans eru appelsínu-
gulir og egglaga, um það bil fimm sentimetrar
að lengd, og fullþroskað tré getur borið allt að
800 ávexti. Ávöxturinn er hýddur utan af
kjörnunum, sem einnig eru nefndir arekahnet-
ur eða betelhnetur. Helzta efnið, sem úr þeim
má vinna, nefnist arecolin, og nota dýralæknar
það sem lyf við bandormum og iðrakveisu í
hestum.
Aðaláhrif betelsins stafa af arecolininu, sem
örvar munnvatnsrennslið og ertir fyrst tauga-
kerfið, en hefur síðan lamandi áhrif á það. Áhrif
þessi og eitrunareinkenni eru svo mild, að varla
er hægt að kalla þau raunverulega eitrun. Hið
eina, sem réttlætir slíka nafngift, er hin sterka
löngun, sem beteltuggan veldur, ástríðufull
betelsýku, sjúklegt betelhungur, sem menn
geta ekki sigrazt á. Ef betelneytandinn getur
ekki orðið sér úti um betel, veldur það honum
sárum þjáningum.
Lyf gegn fæðuefnaskorti.
Hinn lærði ,,eiturlyfjaprófessor“ Dr. L. Lewin
hefur lagt fram furðulega og athyglisverða út-
listun á betelvandamálinu, sem verðskuldar
fyllstu athygli. Verða rakin hér helztu atriði
hennar:
,,Ef litið er á það öryggi, sem ætla má að
betelneyzlan veiti gegn skaðvænlegum lofts-
lagsáhrifum, svo að alveg sé sleppt nautninni
105
HEIMILISBLAÐIÐ