Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.05.1956, Blaðsíða 23

Heimilisblaðið - 01.05.1956, Blaðsíða 23
Guy de Maupassant K 0 N IJ Æ V I Framhaldssaga IX. Þegar Jenný hafði náð sér eftir barnsburð- urðu hjónin ásátt um að endurgjalda de °Urville-hjónunum heimsókn þeirra og einnig a heilsa upp á Coutelier markgreifa. ^ ^Julien hafði keypt einekisvagn á uppboði g. ^ess að þau gætu ekið út tvisvar í mánuði. . ^artan desemberdag var svo haldið af stað vagninum. Þegar þau höfðu ekið í nokkrar ukkustundir um normönsku slétturnar, komu au niður í lítið dalverpi með ræktuðu undir- eudi og skógiklæddum hlíðum. . ,^ar sem ökrunum sleppti, tók við engi og . an flój með stórgerðu sefi, sem á þessum var þurrt, en löng blöðin bærðust fyr- Vlndinum eins og gulir vimplar. j 1 einu var kröpp beygja á dalnum og j. ■l0s kom höllin la Vrillette. Múrar hennar aSu upp að skóginum og niður í dalinn og , UP klíðarnar hinum megin, þar sem gaf að líta avaxin furutré. au fóru yfjr fornfálega vindubrú og í gegn- Vq1 skrautlegt hlið frá dögum Lúðvíks 13. Nú k bau komin inn í hallargarðinn og við b' p11 hin glæsta aðalbygging með silfur- 0 tum turnum á báða vegu. einU lSn útskýrði fyrir Jenný húsaskipunina, s s °g hann væri þeim málum gagnkunnugur, 111 bann reyndar var. ySjáðu bara hliðið,“ sagði hann, „það er j0*‘fílaBsilegt, finnst þér það ekki? Framhlið tr- arinnar vísar út að garðinum og þar eru ^ °PPur, sem liggja niður að vatninu, og við sta þrepið eru fjórir bátar, tveir handa tJ1 1 anum og tveir handa greifafrúnni. Þarna a .ægri, þar sem þú sérð röð aspartrjáa, er e].SU’. Sem rennur til sjávar hjá Fécamp. Þar g Sjjort> óræktað land og það er mesta ánægja a ,1 ans að fara þangað á veiðar. Þetta er sann- egt höfðingjasetur.“ ðaldyrnar voru opnaðar. Hin föla greifa- frú kom brosandi á móti gestunum. Hún var klædd slóðakjól, eins og kastalafrú frá mið- öldum. Hún líktist sannarlega einni af þess- um ævintýraverum, sem eru skápaðar til þess að drottna í greifahöllum. I dagstofunni voru átta gluggar. Fjórir þeirra sneru niður að vatninu og hinir að myrkum barrskóginum, sem teygði sig upp hlíðina á móti. Dökkt barrið setti alvarlegan og þung- lyndislegan blæ á garðinn. Þegar stormurinn þaut yfir landið og hrikti til trjánum, bárust frá þeim stunur, er virtust koma utan úr fenj- unum. Greifafrúin tók utan um báðar hendur Jenn- ýar, eins og hún væri æskuvinkona hennar. Því næst bauð hún henni sæti og settist sjálf á lágan stól við hlið hennar. Julien lék á als- oddi. Hann brosti kumpánlega og hélt uppi skemmtilegum viðræðum. Á síðustu fimm mán- uðum hafði hann endurheimt glæsimennsku sína. Greifafrúin og Julien fóru að ræða um út- reiðar þeirra. Skoti var hleypt af skammt frá gluggunum. Jenný hrökk í kút og rak upp óp. Það var greifinn að skjóta sefönd. Kona hans kallaði á hann. Það heyrðist ára- glamur, bátur lagðist að landi, og svo kom greifinn í ljós. Hann var í háum stígvélum og rennandi votur hundur elti hann. Hundurinn var rauður á hár, eins og húsbóndi hans. Hann lagðist á teppi fyrir framan dyrnar. Greifinn virtist ekki eins óframfærinn á heimili sínu, eins og þar sem hann var gest- komandi. Honum þótti vænt um að sjá gest- ina. Hann sagði þjóninum að bæta meira brenni á eldinn og bera fram létt vín og kökur. „Þið megið til með að borða hjá okkur mið- degisverð,“ mælti hann. Jenný, sem hafði allan hugann við barnið, af- þakkaði boðið. En greifinn endurtók boðið. Hún reyndi að. streitast á móti, en þá varð henni litið á Julien og sá, að hann mundi ekk- ert hafa á móti því að þiggja það. Hún var hrædd um, að Julien kæmist í afleitt skap, ef hún léti ekki undan. En á það vildi hún ekki hætta. Hún féllst því á það að vera kyrr, enda þótt hún sæi þá ekki Pál litla fyrr en daginn eftir. Síðari hluti dagsins var dásamlegur. Fyrst fóru þau að sjá uppspretturnar. Hjá mosagrón- um kletti spratt fram tært bergvatn. Þau fóru í róðrarferð um langa, þrönga skurði, er lágu 111 HEIMILISBLAÐIÐ

x

Heimilisblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.