Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.07.1958, Blaðsíða 41

Heimilisblaðið - 01.07.1958, Blaðsíða 41
Drekkið meiri mjólk • Vaxandi neyzla mjólkur og mjólkur- afurða er talandi vottur þess, að skilningur almennings er vakinn á gildi þeirrar fæðu, er reyndist bezta björgin, er harðast kreppti að þjóðinni. Borðið meira smjör Þó að vaxandi skilningur sé á gildi mjólkurafurða í þjóðarfæðinu, skortir enn á, að neyzla mjólkurafurða sé nóg. Neytið meiri osts Víða um heim er hafin sókn til að útrýma fæðuskortinum. Alls staðar er ráðið hið sama: aukin neyzla landbúnaðarvara, einkum mjólkur- vara. íslendingar! Eflið eigin framleiðslu. Neytið meiri mjólkur Neyzla mjólkurvara í mjög ríkum mæli er grundvöllur næringarriks fæðis. Þar eð nokkuð stór hópur manna hefur ekki athugað þetta, er þeim brýn nauðsyn að auka neyzlu mjólkur og mjólkurvara. Hraust æska neytir meiri mjólkur Það er kappsmál allra þjóðhollra manna, að þjóðin búi við hollasta fæðuval, sem kostur er á. Hér á landi eru öll skilyrði til að framleiða gnótt þeirrar fæðu, sem þýðingarmest er í þjóðarfæðinu. Meiri mjólk, smjör og osta HEIMILISBLAÐIÐ — 173

x

Heimilisblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.