Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.03.1962, Side 3

Heimilisblaðið - 01.03.1962, Side 3
if\acícigciólzcir - EYJAN, SEM FÆSTIR ÞEKKJA Eftir GORDON GASKILL. Madagaskae er fjórða stærsta eyland heims (á eftir Grænlandi, Nýju Gineu og Borneó), og kannski er hún þeirra merk- ttsta. í fyrsta lagi má segja, að hún sé á alröngum stað á hnettinum. Hún liggur úti fyrir Afríkuströndum, í Indlandshafi, en á þó harla fátt sameiginlegt með Afríku eða Indlandi. Fornmenning hennar og tungumál á nefnilega uppruna sinn í lönd- unum við Kyrrahaf, og íbúarnir eru blend- ingur af Malajum og Indónesum. Eyja þessi, sem er 1600 km löng og 575 km breið, hefur næstum fram á vora daga verið leyndardómsfullt ævintýraland, fjar- l^egt og heillandi, einskonar blanda af Shangri-La og Eldorado. En þótt hún geymi enn margan leyndardóminn, er hún smám saman að koma í ljós út úr dular- rnistrinu. I dag tekur það aðeins 16 klukku- tíma að fljúga með risaþotu frá París til Madagaskar. Malagassar — en þannig nefna eyjar- skeggjar sig sjálfa — ættu, að því er ætla rusetti, að hata Fransmenn, sína fyrrver- andi nýlenduherra. Þegar íbúarnir gerðu upphlaup gegn frönskum yfirráðum árið 1947, slógu Frakkar þá niður með harðri hendi, þótt umheimurinn frétti lítið af þeirri viðureign. En svo undarlegt sem það er> þá hafa bæði Frakkar og Malagassar verið ásáttir um það síðan að leggja vopn- in til hliðar. Þeir tóku upp samstarf, sem hefur borið mjög jákvæðan árangur — fá- ar aðrar nýlendur heims hafa jafn skjót- lega og átakalaust náð fullu sjálfstæði. Bæði afrísk og asíatísk yfirráðaöfl hafa síðan reynt að fá hið malagassíska lýð- veldi til fylgdar við sig í kalda stríðinu, en án árangurs. Forseti lýðveldisins, Phili- bert Tsiranana, segir: „Við erum ekki Afr- íkumenn. Við erum ekki Asíubúar. Við er- um við sjálfir." Madagaskar hefur ætíð verið sjálfrar sín, í vissri merkingu þeirra orða. í fjar- lægð sinni og einangrun hefur hún þróað sínar eigin fuglategundir, rándýr, fiðrildi og jurtir, sem fyrirfinnast hvergi annars staðar. Hafið umhverfis Madagaskar er eini staðurinn, þar sem fundizt hafa lifandi eintök af fiski einum bláleitum — tegund, sem þar til fyrir skömmu var álitin út- dauð með öllu fyrir 60 milljón árum. Og í þessu landi einvörðungu lifði aepyornis, risavaxinn og vængjalaus fugl, á stærð við hest og sexfalt þyngri en strútur. Egg hans voru á við fótbolta, og það er ekki lengra síðan honum var útrýmt, að enn er verið að segja spennandi sögur af elt- ingaleiknum við hann. Gróður og dýralíf á Madagaskar er gjör- ólíkt því sem er á austurströnd Afríku, í 400 kílómetra fjarlægð. Á þeirri strönd er

x

Heimilisblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.