Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.03.1962, Blaðsíða 17

Heimilisblaðið - 01.03.1962, Blaðsíða 17
< Styttan af þjóðhetju Austurríkismanna, Andreas Hofer, var stórskemmd í sprengjuárás fyrlr nokkru síðan uppi á Isel-fjalli í Innsbruck. Nú er unnið að viðgerð hennar og annast hana klukknasteypan í bæn- um. Hér á myndinni eru verkamenn að taka annan fótinn af Andreas, því það á að steypa hann á ný. Fyrsta sjálfsölu-benzin- stöðin hefur nú verið opnuð í London, þar sem ökumenn vélknúinna farartækja geta sjálfir fyllt á bila sína, mót- orhjól eða skellinöðrur. Pen- ingi er bara stungið i áhald- ið og handfangi snúið og þá kemur allt af sjálfu sér. > < Og hér er mynd af sjö ára gamalli dóttur Juliette Greco, sem ætlar sér að verða ballet-dansmær, og fær nú tilsögn hjá þekktri rússneskri balletmær í Paris. „Mamma vildi fyrst ekki leyfa mér að dansa,“ sagði Laurence litla, „en þegar ég sagði henni að ég ætlaði að verða fræg, þá gaf hún mér leyfið.“ Harvard Lange, utanrikis- ráðherra Noregs, í ræðu- stól. > < Á helztu hættustöðum * hafa bifreiðaeigendafélögm í Austurríki látið hjálpar- sveitir sínar fá blóðskammta, til að geta aðstoðað þá sem verða fyrir miklum blóð- missi í bifreiðaslysum. Á myndinni sjáið þið marni úr hjálparsveit bifreiðaeig- enda með pakka af slík- um blóðskömmtum (Blod- plasma). Þessi bygging hefur verið reist fast við byggingu SÞ í New York. Þarna er til húsa öll starfsemi sendinefndar Bandaríkjanna hjá SÞ. > heimilisblaðið 61

x

Heimilisblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.