Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.03.1962, Blaðsíða 40

Heimilisblaðið - 01.03.1962, Blaðsíða 40
Vitri lirafninn oé slæ^i refurinn í SKÓGi einum átti heima hrafn, sem var frægur fyrir það, hve vitur hann var. I æsku sinni hafði hann haldið sig nærri húsi skógarvarðarins og hlustað á, þegar börnin voru að lesa skólabækurnar sínar, og eins þegar faðir þeirra fræddi þau um dýrin og jurtirnar. Og af því að hann var minnisgóður, hafði hann lært margt vitur- legt af mönnunum. Af þessu leiddi, að hin dýrin leituðu ráða hjá honum, þegar eitt- hvað var að. En í sama skóginum var ung- ur refur, sem gramdist það, að annar var talinn vitrari en hann, og gerði því hrafn- inum allt til háðungar, sem hann gat. Dag nokkurn sat hrafninn uppi í tré í skógar- jaðrinum og horfði hugsandi eftir vegin- um. Það var áliðið dags og þorpsbúar voru á heimleið frá vinnu sinni. Þegar tveir af bændunum fóru fram hjá, heyrði hrafninn að annar þeirra sagði: „í gær stal ref- skrattinn aftur frá mér hænu. En þó að hann sé slægur, þá gengur hann þó ekki úr greipum skógarvarðarins, því að ég er bú- inn að segja honum frá þessu.“ Hrafninn var að velta því fyrir sér, hvort hann ætti að aðvara refinn. En þá heyrði hann skelli- hlátur og kom auga á refinn, sem lá þar í þéttum runna, og hrópaði til hans: „Heyrirðu, jafnvel mennirnir viður- kenna vitsmuni mína!“ „Slævizku þína,“ sagði hrafninn. „Eins og það sé ekki það sama,“ sagði refurinn gremjulega. „Nei, ónei,“ svaraði hrafninn. „Sá, sem er slægvitur, hugsar aðeins um sjálfan sig, \ en sá vitri vill hjálpa öðrum með vitsmun- um sínum. „Uss,“ sagði refurinn hæðnislega, „þá vil ég langtum heldur vera slægvitur og lofa þér að hafa vitsmunina. Ég vona, að þú skemmtir þér vel, þegar þú heyrir bænd- urna tala um slægvizku mína. Ég á eftir ! að sækja marga feita og ljúffenga hænu til þeirra ennþá.“ „Skjótt breytist veður í lofti,“ sagði hrafninn. „Svei,“ urraði refurinn, „þú ert alltaf | úttroðinn af þessum aulalegu málsháttum.“ „Því miður hafa ekki allir vit á að skilja þá og læra af þeim,“ svaraði hrafninn. „Það er leiðinlegt, að þínir venjulegu til- ! heyrendur skuli vera sofnaðir,“ sagði ref- urinn hæðnislega. — „þeir mundu hlusta á þig með hrifningu, þó að ég hlæi að þér. Ég veit svo sem, að þú hefur lært alla ; þessa málshætti af óvinum mínum, mönn- unum.“ „Jafnvel af óvinum sínum er hægt að læra,“ sagði hrafninn. „Blessaður, lærðu þá af þeim eins og þú vilt! Ekki þarf ég þess,“ sagði refurinn drembilega og reis á fætur. En eftir þessu tækifæri hafði skógar- vörðurinn beðið. Hár hvellur heyrðist, og refurinn slægvitri hné dauður til jarðar. „Hér sannast hið fornkveðna, að dramb er falli næst,“ sagði hrafninn alvarlega, stakk nefinu undir vænginn og fór að sofa. jarlsins, og innan skamms komu þeir til Leiru, þar sem fjöldi gesta var saman kominn. En þótt Fróði konungur reyndi að sýn- ast lítillátur og vingjarnlegur, var enginn glaður, því að engum manni var vel til hans, og gestirnir ræddust við í hálfum hljóðum um Hálfdán konung, sem myrtur hafði verið, og horfnu prinsana tvo. Signý grét, þegar henni var hugsað til bræðra sinna, en svo kom hún auga á hálfstálpað- an dreng í hópi þjónustufólksins . . . og þar þekkti hún aftur Hróar bróður sinn og varð dauðhrædd um, að Fróði konungur kynni líka að bera kennsl á hann. Þegar veizlan stóð sem hæst, komst allt á tjá og tundur. Fróði sá drengina ög þekkti þá og ætlaði að drepa þá tafarlaust, en þá risu allir Danirnir upp og vörðu prinsana, svo að Fróði konungur varð sá, sem drepinn var, en Hróar og Helgi voru gerðir að konungum í Leiru. 84 HEIMILISBLAÐIÐ

x

Heimilisblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.