Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.03.1962, Blaðsíða 10

Heimilisblaðið - 01.03.1962, Blaðsíða 10
Hún játaði það með því að drúpa höfði. Aftur varð þögn. — Vonbrigði Monsieurs Lefresnays voru stór. Það var þá engin ókunnug stúlka lengur, sem elskaði hann; engin, sem kynti undir glæðum hans karl- mannlega stolts, — því að Monsieur Le- fresnay fannst það ekkert til að vera hreyk- inn af, að vera elskaður heitt af eiginkon- unni. Það gat ekki komið honum til að halda, að hann væri ómótstæðilegur. Hún var konan hans, og það var skylda hennar að elska hann. — Henni þótti þá vænna um hann en hann hafði haldið, og það snart hann mjög; en hann var henni samt mjög gramur og sagði hranalega: „Jæja, svo það ert þú, sem hefur skrifað bréfin. En má ég spyrja, — hvaða heiðar- leg kona skrifar manninum sínum þvílík bréf? Hvers vegna tókstu upp á þessu, og hvaðan hefurðu fengið öll þessi ástarorð og setningar?“ „Úr skáldsögum, sem ég hef lesið,“ svar- aði hún, örvæntingarfull yfir því að hafa verið staðin að verki, og vegna þess hversu reiður hann var. „Skáldsögum, sem þú hefur lesið?“ „Já, ég tók setningar héðan og þaðan og raðaði þeim saman . . . mér leiddist svo .. . mér þótti gaman að þessu ... Þú ert þó ekki reiður við mig, Edmond?“ Hann komst við. Honum hafði aldrei komið til hugar, að konunni hans þætti svona vænt um hann. Hún hélt áfram: „Þegar ég var búin að skrifa fyrsta bréf- ið, þótti mér það svo gott, að mig langaði til að senda það, og ég gat ekki sent það neitt annað en til þín. . . Ég setti nafnið Edmond inn í fyrst þá. . . Og ég hafði gaman af að sjá, hvað þú tókst þetta al- varlega; að þú fórst eftir því sem ég ósk- aði. Ég hló í hjarta mínu, þegar þú settir upp ný og ný bindi eða fórst á einhvern tilteiknn stað og beiðst, eins og ég hafði beðið þig um .. . og þegar mig langaði til að fara í leikhús, þurfti ég ekki annað en skrifa þér það. Hinsvegar ef ég hefði beð- ið þig um það hér heima, er nokkurn veg- inn víst, að ég hefði fengið neitun ... en nú geturðu séð, að ég skrifaði þessi bréf Cóulióð Velkomin heim! Sunnan frá sólríkum löndum Snælands að hrjóstrugum ströndum. Velkomin heim! Velkomin heim! Svanir með söngróminn blíða syngja þér kveðjuna þýða: Velkomin heim! Velkomin heim! Þröstur á greinunum grænum, gelur þér vorljóð með blænum: Velkomin heim! Velkomin heim! Kveðja frá kjóa og spóa kveður úr móa og flóa: Velkomin heim! SPÓI. ekki í neinni alvöru. Þetta var bara grín.“ Monsieur Lefresnay stóð þögull og graf- kyrr. Síðustu orðin höfðu komið við hann líkt og kjaftshögg. Stolt hans hafði verið sært. Hann var í raun og sannleika enginn Don Juan. Ekki einu sinni í augum henn- ar... 54 HEIMILISBLAÐIÐ

x

Heimilisblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.