Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.03.1962, Qupperneq 9

Heimilisblaðið - 01.03.1962, Qupperneq 9
gjafarsvip, að hún virtist beinlínis ungleg, ■— henni fannst hann enn strangari og meira hrollvekjandi í allri þessari þögn sinni en endranær. Monsieur Lefresnay beið óþolinmóður eftir öðru bréfi. Og það kom, þrem dögum síðar. Það var sömuleiðis vélritað á sams konar pappír: „Ég hef séð yður enn einu sinni, og ó, hversu heitt ég elska yður. Ást mín vex i hvert sinn sem ég sé yður. Þegar ég sá yður síðast, hugsaði ég sem svo: „Hann hefur lesið bréfið mitt, en hann veit ekki, að það er ég sem hef skrifað það. Skyldi ég nokkurn tíma þora að segja honum það?“ Bréfið hélt áfram í sama tón, og nokkru neðar stóð: „Ef þér óskið, að ég haldi áfram að skrifa yður, viljið þér þá ekki vera svo vænn að standa fyrir framan Madeleine- kirkjuna á föstudagskvöldið klukkan sjö, með samanbrotið dagblað í höndun- um? Þér fáið ekki að sjá mig, en ég fæ að sjá yður, og þá veit ég, að ég verð að halda áfram að skrifa yður.“ Monsieur Lefresnay var grallaralaus. Atti hann að fara niður að Madeleine- kh’kju með dagblað í hendinni á föstudags- kvöldið klukkan sjö? Var það ekki að láta ofmikið undan bláókunnugri manneskju? Á hinn bóginn hafði hann ekkert á móti l'ví að vera elskaður. Og hann ákvað að fnra þangað ... Næsta laugardag fékk hann bréf á ný, °g síðan rak hvert bréfið annað, sífellt lengri og ástheitari. Hann brann í skinninu eftir að vita, hvaða kvenmaður þetta væri, og kynnast henni. Kvöld eitt í heimboði þóttist hann Seta þekkt hana þar sem var Marcelle Fo- vihe. Hann hafði sagt eitthvað við hana, og það var engu líkara en hún hefði skilið nann á alveg sérstakan hátt. Það er hún, hugsaði hann, á því er eng- «n vafi. >>Já, ég get sagt yður, að ég elska yður ma, ‘ sagði hann við Madame Foville og greip laust í handlegg hennar til að leiða hana inn í aðra stofu. „Hva — hvað segið þér? Hvað eruð þér eiginlega að segja, ég skil yður ekki!“ hálfhrópaði hún undrandi, og þá rann upp fyrir honum, að það gat ekki verið hún. En hver var það þá? Hann hélt áfram að fá bréf, tilfinninga- rík og hjartahlý, en enn þorði stúlkan ekki að segja hver hún var. Stundum var hon- um sagt í bréfunum að láta í ljós vilja sinn til þess að fá þessi bréf áfram — með því að ganga með eitthvert tiltekið bindi um hálsinn, láta sjá sig á ákveðnu götuhorni á vissum tíma eða fara í leikhús eftir nán- ari ákvörðun bréfritara. Þetta gerði hann allt, því hann brann í skinninu eftir að kynnast kvenmanninum. Hann hugsaði ekki um annað og var hreykinn af því að vera elskaður svona heitt. Verzlunarmaður fram í fingurgóma, eins og hann var, var orðinn rómantískur. Hann var ekki lengur hinn rólyndi og strangi Lefresnay eins og áður; hann var orðinn utan við sig og gleyminn. Einn morguninn, er hann kom á skrifstofuna, uppgötvaði hann, að hann hafði gleymt peningaveskinu sínu heima. En í því voru ekki aðeins peningar, heldur einnig nokkur verðmæt plögg og meðal annars síðasta bréfið frá hinni ókunnu. — Hann vildi ekki hringja eftir veskinu, held- ur ók sjálfur heim og sótti það. Hann gekk rakleitt upp í svefnherbergið sitt og þaðan inn í litlu stofuna þar sem kona hans var vön að hafast við. Hún var þar ekki inni, en skrifborðið hennar stóð opið, og á því sá hann hvar stóð lítil ritvél með ný- byrjuðu sendibréfi. 1 hugsunarleysi leit hann á bréfið. Bréfsefnið var ofur venju- legt, rétt eins og í þeim bréfum, sem hann fékk að staðaldri frá hinni ókunnu. Og þarna stóð: „Edmond, ég elska yður...“ Hann stóð í sömu sporum, lamaður. Hann vildi ekki trúa sínum eigin augum, en gat ekki annað. „0, Edmond?“ æpti frúin upp yfir sig, er hún kom inn í dyrnar. Löng og niðurdrepandi þögn. — „Það ert sem sagt þú, sem sendir mér öll bréfin?“ spurði hann konu sína að lokum. HEIMILISBLAÐIÐ 53

x

Heimilisblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.