Heimilisblaðið - 01.03.1979, Side 3
Hann safnði snjókornum
Eftir DAVID og RAFAEL EPSTEIN
Bandaríkjamaðurinn Wilson Bentley,
sem um hálfrar aldar skeið hefur varið
frítíma sínum í að ljósmynda snjókrist-
alla og- gera á þeim lýsingar, er þekktur
^eðal veðurfræðinga um allan heim. Þetta
yar ekki annað en óbrotinn sveitamaður
1 Vermont, en sérhver sem leggur stund
a ti'æðilega rannsókn úrkomu, þekkir nafn
^ans og verk og notast við þær 6000 smá-
s.larljósmyndir hans, sem eru heimildar-
efni sem enginn fræðimaður á þessu sviði
^efUr án verið.
^ilson Bentley fæddist í þennan heim í
febrúarmánuði 1865 á sveitabæ í grennd
Vlð Jericho í Vermont. Þegar í bernsku
varð vai-t hjá honum sérstakrar rannsókn-
ar-áráttu og hæfileika í þá átt, og innan
v|ð tíu ára aldur hafði hann þegar komið
Sei' upp einstökum gróðurreit sem hafði
að geyma svo til allar burknategundir í
Vei'montfylki.
Svo var það á 15 ára afmælisdaginn
lans, að foreldrar hans gáfu honum smá-
sla. Þannig vildi til, að það var snjókoma
Peiinan dag, og Wilson lét snjókorn falla
a tilraunaplötu og brá henni undir smá-
sJana. I mikilli hrifningu kallaði hann á
^ahrles eldri bróður sinn, til þess að hann
&æti Séð það sem fyrir augum blasti, en
því miður var snjókornið bráðnað, þegar
Charles kom á vettvang. En Wilson lét
að sjálfsögðu ekki þar við sitja. Hann fór
með smásjána út fyrir húsdyrnar og lét
hana kólna, — svo að hann gæti sýnt for-
eldrum sínum, hvaða leyndardóm hann
hafði uppgötvað. Og það sem eftir var æv-
innar vann hann að því meira og minna
að veita öðrum mönnum innsýn í þann
töfraheim, sem snjókristallarnir ljúka upp,
séu þeir grandskoðaðir.
Þegar hann var tvítugur, hafði hann
þegar áunnið sér fullkomna tækni á þessu
sviði. I brekku nokkurri skammt frá bæn-
um hafði hann reist sér skúrbyggingu og
komið þar fyrir ljósmyndavél og smásjá,
þannig að hann gat Ijósmydað snjókomuna
við dadgsbirtu og náð á filmu allri gerð
hennar í smæstu atriðum. Sæmilegur snjó-
stormur veitti honum í aðra hönd að öll-
um jafnaði 50—75 slíkar myndir. Gjarn-
an lét hann þessar „fyrirsætur" sínar falla
á svartan flauelsklæddan bakka, sem hann
hélt út um opnar skúrdyrnar, unz komin
voru 10—20 stykki. Því næst gaumgæfði
hann kristallana gegnum smásjána, valdi
svo einn, sem hann setti á tilraunaplötu
til nánari athugunar og ljósmyndunar.
Bentley varð þannig sérfræðingur í